Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
07.09.2008 09:05
Ljósanætur-Dalaröst GK
Eins og allir sannir suðurnesjamenn þá var síðuhöfundur staddur á hátíðarhöldunum útaf ljósanótt. Þegar líða tók á kvöldið þá kom Egó að spila sem reyndar var ansi döpur, það fer ekki Bubba að syngja á ensku. enn ekki meira um það. Fyrir utan á sjónum þá voru þar ansi margir bátar að lóna fyrir utan, og einn þeirra vakti athygli mína.
Hann var stærri enn hinir og í myrkrinu þá greindi ég að þarna væri Dalaröst GK.
Tók báturinn sig ansi vel út þarna fyrir utan.
Aflalega séð þá má segja að báturinn hafi mokfiskað í ágúst, og var stærsti róðurinn 12.3 tonn. Landaði Dalaröst GK alls 6 ferðir meira enn 10 tonn í löndun, og þegar best lét þá kom báturinn með alls 56.8 tonn í 5 ferðum eða 11.3 tonn í róðri.
Núna í september þá byrjar báturinn ansi vel, þar sem hann er búinn að landa þrisvar alls tæpum 31 tonnum.
og því kanski vel við hæfi eftir góðan ágúst mánuð að halda uppá ljósanóttina lónandi fyrir utan.
Skrifað af Gísli.R
