Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
03.09.2008 08:19
Makrílveiðar Sigga Bessa SF
Allar myndir frá Guðlaugi á Öðlingi SU. Þakka ég honum fyrir myndirnar.
Fékk sendar myndir af makríl veiðum Sigga Bessa SF frá hornafirði. Guðlaugur sem er skipstjóri á Öðlingi SU fór með í túrinn og tók myndirnar. Siggi Bessa SF hefur gengið þokkalega á makrílnum og var búinn að fá rúm 5 tonn núna í ágúst. Enn hann er ekki sá eini.
Þó nokkrir handfærabátar aðrir hafa fengið makríl, og ber þar helst að nefna Sævar SF og Silfurnes SF sem hafa róið sérstaklega til þessara veiða.
Einnig nokkrir handfærabátar frá Vestmannaeyjum og Hrappur GK frá Grindavík.
Dragnótabáturinn Egill SH hefur fengið nokkur kíló af makrílnum, og netabátarnir Sæþór EA og Ísak AK. Og ekki má svo gleyma að við bryggjuna í Garði hefur fólk komið þangað í stórum stíl og veitt ansi vel af honum þar.
Skrifað af Gísli.R
