Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370780
Samtals gestir: 530320
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 02:17:59
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
31.08.2008 21:13
Grímsey ST
Mynd Alfons Finnson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Á Dragnótalistanum núna í ágúst þá hefur líklegast ekki farið frammhjá neinum sem fylgst hafa með þeim lista að þar hefur Grímsey ST verið að fiska ansi vel. Er svo komið núna að Grímsey ST er fimmti báturinn sem yfir 100 tonnin fer og ágúst er ekki búinn.
Á listanum þá var Grímsey ST fyrst í hópi með t.d Hafrúnu HU, Reginn HF og Egil ÍS. Er Grímsey ST búinn að slíta sig frá þeim og er kominn í hóp með þeim 4 efstu sem eru búnir að vera þar allan ágúst mánuð.
Ég reiknaði saman alla ágúst mánuði sem ég gat aftur í tímann og svo virðst vera sem þessi ágústmánuður sé einn sá stærsti í útgerðarsögu Grímseyjar ST. Ég get nú reyndar ekki fullyrt um að þessi ágústmánuður sé sá stærsti í sögu bátsins, því báturinn hefur heitið ansi mörgum nöfnum og verið gerður út á mjög svo mörg veiðarfæri. Áður enn báturinn fékk Grímseyjar nafnið þá hét hann Auðbjörg II SH, og voru Auðbjörg SH og Auðbjörg II SH mjög afskapamiklir dragnótabátar frá Ólafsvík.
Allavega þá lítur samanburður fyrir ágúst svona út.
árið 2001 þá réri Grímsey ST á rækju og fékk 19,7 tonn í 4 ferðum
árið 2002 aftur á rækju og fékk 29,8 tonn í 4 ferðum, mest 11,2 tonn.
árið 2003 var báturinn á dragnót og fékk 5,9 tonn í 6 ferðum
árið 2004 var báturinn á dragnót og fékk 44,1 tonn í 10 ferðum,mest 8,5 tonn
árið 2005 á dragnót og fékk 58,2 tonn í 10 ferðum mest 10,8 tonn.
árið 2006 á dragnót og landaði alls 61,6 í 15 ferðum mest 10,5 tonn
árið 2007 á dragnót og landaði 29,2 tonni í 15 ferðum.
Eins og sést á þessum samanburði mili áranna þá er aflinn núna í ágúst mok miðað við hina mánuðina, og greinilegt að þótt að báturinn sé orðinn 53 ára gamall þá er hann í mjög svo góðu standi, því ekki fiskast á bát sem sífellt er við bryggju.
Ef strákarnir á Grímsey ST eru á þessari síðu þá vil ég óska þeim til hamingju með góðan ágúst mánuð.
Skrifað af Gísli.R
