Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
22.08.2008 21:55
Fullfermi hjá Helga Hrafni ÓF
Mynd Ragnar Pálsson . færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Einn af þeim handfærabátum sem er búinn að gera það mjög gott núna í sumar er Helgi Hrafn ÓF. sem þrátt fyrir að vera skráður frá Ólafsfirði þá er báturinn búinn að vera að róa frá Sandgerði í sumar, og hefur gengið mjög vel. t.d var báturinn 3 aflahæsti handfærabáturinn í júní, og 7 hæsti í júlí. núna það sem af er ágúst þá hefur veiði verið þokkaleg hjá bátnum.
Þokkalega fyrir utan einn róður. því í byrjun ágúst þá kom báturinn með stærsta handfæraróður sinn á árinu. var landað úr bátnum alls 4.5 tonni, og af því var ufsi 4.3 tonn. Reyndar eru tvær landanir skráðar á bátinn þennan dag sem er 8 ágúst, enn spurning hvort það sé villa í skráningu.
Engu að síður er 4.5 tonn á þenna litla bát sem er ekki nema 6 BT, mjög góður afli, Fullfermi??. já ég myndi segja það
Skrifað af Gísli.R
