Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
13.08.2008 20:18
Aflahæsti togarinn árið 1965.
Eins og greint var frá hérna á síðunni varðandi togaranna árið 1965 þá fjallaði ég aðeins um Sigurð ÍS. Við þá grein þá setti ég fram þá spurningu um hvaða togari hafi verið aflahæstur það ár. Kanski var of langt spurt aftur í tímann, því aðeins eitt svar kom og það var reyndar það rétta. Togarinn Maí GK varð aflahæsti togarinn árið 1965.
Hérna í þessum pistli þá mun ég renna mánuð fyrir mánuð um togarann Maí GK.
Janúar: Togarinn landaði einu sinni alls 141 tonni.
Febrúar: Maí GK landaði tvisvar alla 411 tonnum eða um 205 tonn í róðri. Þess má geta að mestur hluti afla Maí GK allt árið 1965 fór til vinnslu hjá Bæjarútgerð Hafnarfjarðar. Að auki þá fór hluti af afla hvers túrs víða um suðurnesin og á höfuðborgarsvæðið, mestmegnis í fiskbúðir.
Mars: Togarinn landaði einu sinni alls 263 tonnum. Þótt þetta sé stór löndun þá telst þetta ekki fullfermi hjá Maí GK.
Apríl: Togarinn landaði tvisvar alls 493 tonnum eða 246 tonn í löndun. Nokkuð góður mánuður
Maí: Ef apríl var góður þá var Maí mánuður enn betri fyrir togarann. Því Maí GK landaði þrisvar sinnum alls 813 tonnum eða 271 tonn í löndun.
Júní: Hérna koma stóru róðrarnir, því Maí GK landað einungis tvisvar enn kom samt með að landi 658 tonn eða 328 tonn í löndun. Þetta myndi komast næst því að vera fullfermi hjá Maí GK
Júlí: Stærsti mánuður togarans og jafnframt sá mesti afli allra togara árið 1965 í einum mánuði það ár. Því Maí GK landaði alls 986 tonnum í einungis 4 ferðum eða 246 tonn í róðri.
Ágúst: Maí GK landaði eina löndun alls 262 tonn.
September : Ein löndun sem var landað erlendis alls 231 tonn.
Október: landað í þýskalandi alls 189 tonnum.
Nóvember: Einnig landað í þýskalandi alls 162 tonnum.
Heildarafli Maí GK árið 1965 varð því 4607 tonn í 19 ferðum eða 242 tonn í löndun. Þetta verður að segjast ansi góður afli í ekki fleiri löndunum. Og má bæta við að alls 33 togarar voru að veiðum árið 1965.
Að lokum má geta þess að hægt er að bera Maí GK saman við Sigurð ÍS með því að fara í "gömul tíð" sem er staðsett í flokkum hérna við hliðina.
Skrifað af Gísli.R
