Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 2133
Gestir í dag: 454
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364283
Samtals gestir: 529074
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 22:48:23
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
04.08.2008 20:28
Sigurður ÍS árið 1965.
Þar sem voðalega lítið er að ske núna, og engir lista geta uppfærst fyrr enn á morgun þá ætla ég að líta aðeins á togarann Sigurð ÍS. Þetta skip er eitt af frægustu aflaskipum íslands. Árið 1965 svo ég vitni nú enn og aftur í það þá var togarinn gerður út allt árið 1965. Má segja að um helmingur aflans hafi verið landaður erlendis. Aflalega séð þá litu mánuðir togarans árið 1965 svona út.
Í janúar þá landaði togarinn einu sinni í þýskalandi 129 tonni.
Febrúar: ein löndun í þýskalandi, alls 238 tonna afla.
Mars: Landaði heima alls 405 tonnum í tveimur ferðum eða 202.5 tonn í túr.
Apríl: Mokveiði hjá skipinu. landaði heima og landaði einungis tvisvar enn var emð 620 tonna afla, eða um 310 tonn í túr.
Maí: Landaði tvisvar 267 tonnum eða um 133 tonn að meðaltali.
Júní:Landaði einu sinni alls 252 tonni.
Júlí: Annar 600 tonna mánuður. Landaði tvisvar alls 615 tonnum. eða 312.5 tonn í löndun.
Ágúst: Landaði einu sinni 229 tonnum.
september: Landaði þrisvar sinnum alls 478 tonnum eða um 160 tonn í löndun.
Október: Landaði í Þýskalandi alls 136 tonni í einni ferð.
Nóvember: Aftur í þýskalandi, alls 197 tonni í einni ferð.
Desember: aftur var landað í Þýskalandi ein ferð 148 tonni.
Alls var aflinn hjá Sigurði ÍS árið 1965 því 3715 tonnum.
Smá viðbót. Eins og Orri segir hérna að neðan að aflinn sé dágóður miðað við fjölda róðra. Þá langar mér að velta þeirri spurningu upp um það hvaða togari hafi verið aflahæstur árið 1965???.
Þessi spurning gæti reynst nokkuð erfið því nú reynir á þekkingu manna um hvaða togarar voru gerðir út árið 1965?. Eða réttara sagt man einhver eftir togara frá þeim tíma.
Smá svona pæling um aflahæsta togarann árið 1965, hann var sá eini sem yfir 4000 tonn fór, og mánaðarafli hjá þeim togara var í nokkur skipti ævintýralega mikill..
Skrifað af Gísli.R
