Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
26.07.2008 19:53
Frystitogarar í Júní
Júní listinn hjá frystitogurnum er ansi fámennur, enda fóru flestir togarnir út rétt eftir sjómannadaginn, og voru allan júní að veiðum.
Þessi listi er fyrsti listinn sem er með aflaverðmætistölur meðferðis. ( reyndar gerði ég smá prufu á maí listanum sem ég setti aftur á síðuna með aflaverðmætistölum).
Ég minni á að þessar aflaverðmætis tölur miðast við meðalverð togaranna fyrir árið 2007. Ég veit að þetta er ekki beint réttar aflaverðmætistölur, enn eins og ég hef áður skrifað um hérna á síðunni þá er þetta eina leiðin sem ég hef til að gera aflaverðmætinu skil.
Auðvitað myndi ég vilja gera þeirri tölur betri skil, og eins og einn skipstjóri nefndi við mig að ef ég gæti komist að einhverju verði fyrir hverja fiskitegund fyrir sig, og þannig væri hægt að gera nokkuð nákvæmri aflaverðmætistölu heldur enn er hérna á síðunni.
Annars af listanum sjálfum þá raða ég togurnum eftir afla, enn ef miðað ætti við áætlað aflaverðmæti þá myndi röðuninn verða nokkuð öðruvísi, eins og sjá má á listanum
| Sæti | Nafn | Afli | Dagar | afli.per Úthd | Áætlað Aflaverðmæti |
| 1 | Mánaberg ÓF | 552.443 | 27 | 20.4 | 70.5 |
| 2 | Kleifaberg ÓF | 468.88 | 27 | 17.3 | 75.9 |
| 3 | Guðmundur í Nesi RE | 431.927 | 23 | 18.7 | 55.8 |
| 4 | Frosti ÞH | 352.352 | 27 | 13.1 | 58.9 |
| 5 | Hrafn.Sveinbjarnarsson.GK... | 267.608 | 26 | 10.2 | 32.7 |
Skrifað af Gísli.R
