Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
18.07.2008 23:20
smá frá árinu 1966
Núna er ég byrjaður á árinu 1966. Kem með smá innsýn inní hvað var að ske seinni hlutann í apríl frá bátum sem lönduðu hjá Hraðfrystistöð Vestmannaeyja.
Björn Riddari VE 127 var á trolli allan mánuðinn og má segja mokfiskaði fékk 210 tonn í 12 ferðum, og þar af í seinnihluta apríl 128 tonn í 6 ferðum eða um 21 tonn í róðri. af þessum afla voru 110 tonn af ýsu.
Neðantaldar tölurmiðast við 15 apríl til 31 apríl
Bára SU var einn af nokkrum sem var á nótaveiðum og landaði 178 tonnum í 5 ferðum, um 36 tonn í löndun.
Engey RE fór einni ferð meira eða 6 ferðir og var með 216 tonn, eða líka 36 tonn í róðri. var þorskur hjá báðum bátunum.
Hannes Lóðs RE fékk 69 tonn í einungis 2 ferðum á trolli, eða tæp 35 tonn í róðri. Verður þetta að teljast allsvakalega góður afli þar sem vert er að hafa í huga að þarna erum við að tala um 59 brl eikarbát.
Jón Stefánsson VE 49 var á netaveiðum og var með 136 tonn í 6 ferðum. eða um 23 tonn í róðri.
Tekið skal fram að þessar tölur miðast allar við 15 apríl til 31 apríl nema hjá Björn Riddara VE
Skrifað af Gísli.R
