Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

14.07.2008 18:03

"kvótalaust drasl"

Hérna að neðan er mynd og smá frétt um stóran róður hjá bátnum Bilmingi SI sem gerir út frá Siglufirði.  Við hana skrifaði maður/kona sem kemur fram undir nafinu gg, kvótalaust drasl...!!
Ansi hörð orð, ástæða þessara orða gg veit ég ekki, enn hann er kanski ekki sá eini sem hefur horn í síður kvótalausu bátanna.  Hversu oft les maður eða heyrir í viðtölum við hinu ýmsu sjómenn víða um land að það er sífellt verið að naga í kvótalausu bátanna.  Sjaldan talað fallega um þessa útgerðarmenn. 

afhverju kvótalaus??.  Í dag er ekkert mál að kaupa sér bát og fá veiðileyfi, enn aftur á móti ansi erfitt að geta byrjað veiðar vegna þess að kvótinn bæði til sölu og leigu er orðinn það dýr.  döpur staðreynd þegar það eru til ungir menn víða um land sem vilja gera út á sjóinn.  Svo virðist vera sem menn hagnist meira á því að eiga kvóta og leigja hann út eða selja hann frá sér.  er það sjómennska???. 
Þegar fyrst var úthlutað kvótanum á sínum tíma þá þurftu menn ekki að borga fyrir hann, menn fengu kvóta útá veiðireynslu síðust 3ja ára þar á unda, ( 81-82-83 að mig minnir). 

Afhverju ættu þessir menn að geta selt kvóta burtu frá sér svo síðar meir þegar þeir ákveða að hætta útgerð. frekar að skila inn kvótanum og hann myndi síðan fara til þeirra sem hefðu t.d veiðireynslu ja síðustu 3ja ára þar á undan. Að auki þá hefur sá útgerðarmaður/fyrirtæki fengið úthlutaðan kvóta ár eftir ár og hefur getað gert út bát sinn án þess að leigja kvóta til sín.  Á meðan annar aðili sem gerir út kvótalausan bát hefur þurft að leigja til sín kvóta.  Svo ákveður kvótaeigandinn að hætta útgerð og selur sinn kvóta og svo t.d gæti kvótalausi eigandinn keypt þann kvóta því hann ætlaði´sér að halda áfram útgerð.  Er þetta sanngjarnt??,.  nei segi ég.

Ég hef alltaf borið þónokkra virðingu fyrir þessum útgerðarmönnum sem eru kvótalausir/ kvótalitlir enn ná samt að gera bát út yfir t.d heilt ár.  nægir þar að nefna Marta Ágústdóttir GK, Grímsnes GK, Maron GK, Margréti HF, Arney HF, Sæberg HF af stóru bátunum og af þeim minni má nefna Happadís GK. 
Einn af þessum bátum Marta Ágústdóttir GK hefur verið gerð út( reyndar var Eldhamar GK líka gerður út af sama eiganda) í ansi mörg ár, og alltaf kvótalaus eða kvótalítill.  væri ekki sanngjarnt að báturinn fengi úthlutaðan kvóta byggt á veiðireynslu síðstu 3ja ára.?

Enn það eru ekki miklar líkur til þess að þetta breytist, og því munu útgerðarmenn áfram geta farið með margar milljónir útúr kerfinu, sem gerir þeim útgerðarmönnum erfitt fyrir sem langar að gera út áfram. 


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1195
Gestir í dag: 321
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611867
Samtals gestir: 581000
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 21:35:39

Tenglar