Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
31.07.2008 21:45
Færaveiðar í júlí
Listi númer 6.
Það fer ekkert á milli mála að sá listi hérna á síðunni sem er með mesta lífinu er færalistinn. Bátar koma inn og detta út, bátar hoppa upp um mörg sæti og á sama móti hrynja niður listann.
Á þessum lista þá eru það tveir bátar sem eru hástökkvarnir. Sævar SF fer upp um 17 sæti og munar þar langmestu um fullfermis róður hjá bátnum ,enn Sævar kom með 6.2 tonn að landi og var þar að lengmestu leiti ufsi.
Víkingur ÞH gerir þó mun betur enn þessi 17 sæti hjá Sævar SF því hann fer upp um 29 sæti milli lista. Víkingur ÞH rær frá Raufarhöfn enn færabátar þaðan, sem og fleiri af norðausturhorni landsins hafa sótt stíft og fiskað ansi vel. má þar nefna t.d Börk Frænda NS sem fer upp um 7 sæti, Kristín NS og Svana ÞH svo einhverjir séu nefndir.
Akraberg AK og Tryggvi Eðvars SH eru hættir á færum og komnir á línuna.
Annars á toppnum þá virðist ekkert geta haggað Kolbeinsey EA þar, þóttt að Öðlingur SU reyni að kroppa í hann.
| Sæti | Nafn | Afli | Róðrar | Mest |
| 1 | Kolbeinsey EA | 60,292 | 12 | 7,2 |
| 2 | Öðlingur SU | 41,957 | 13 | 5,1 |
| 3 | Sigrún EA | 31,866 | 16 | 3,1 |
| 4 | Már SU | 27,651 | 15 | 3,1 |
| 5 | Svana ÞH | 26,458 | 10 | 4,4 |
| 6 | Sævar SF | 24,538 | 9 | 6,2 |
| 7 | Litlanes ÞH | 20,421 | 8 | 3,2 |
| 8 | Börkur Frændi NS | 17,905 | 12 | 3,5 |
| 9 | Helgi Hrafn ÓF | 17,06 | 8 | 3,9 |
| 10 | Víkingur ÞH | 16,896 | 16 | 2,2 |
| 11 | Hanna SH | 16,41 | 12 | 2,9 |
| 12 | Akraberg AK | 16,303 | 4 | 5,4 |
| 13 | Petra VE | 15,987 | 6 | 4,5 |
| 14 | Rán SH | 15,669 | 9 | 3,4 |
| 15 | Laugi ÞH | 14,843 | 14 | 2,7 |
| 16 | Kristín NS | 14,693 | 11 | 1,9 |
| 17 | Lilja BA | 14,198 | 7 | 3,3 |
| 18 | Kári II SH | 13,979 | 7 | 3,8 |
| 19 | Elva Björg SI | 13,181 | 15 | 1,1 |
| 20 | Hítará MB | 13,09 | 9 | 2,3 |
Skrifað af Gísli.R
