Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 2108
Gestir í dag: 453
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364258
Samtals gestir: 529073
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 22:24:25
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
24.06.2008 02:58
Rækjuveiðar í Júní
Í júní fyrir ári síðan þá var ansi mikið fjör á rækjuveiðunum. Sigurborg SH og Gunnbjörn ÍS (1327) voru báðir með um og yfir 70 tonna afla, að auki þá voru t.d Röst SK og Guðbjörg Steinunn GK að veiðum.
Núna í júní er algjör andstæða. Sigurborg SH hefur ekkert róið í júní, Röst SK hefur ekkert farið af stað á rækjuna, og eftir eru Gunnbjörn IS (bæði 1327 og 1686), og Jakop Einar SH.
Gunnbjörn ÍS (1327) er kominn með 58 tonn af rækju og að auki hefur togarinn landað þónokkru af fiski og mest af grálúðu. líklegast er hann með tvö troll um borð því skylt er að hafa skilju á rækjutrollinu.
Hinn Gunnbjörn IS (1686) er rétt kominn með um 12 tonn í tveimur ferðum.
Jakop Einar SH er kanski sá bátur sem mesta athygli vekur því hann hefur róið langmest allra þessa fáu rækjubáta, hefur hann farið í 4 ferðir og er kominn með tæp 23 tonn að landi.
Ýmsar spurningar vakna þegar ég sé svona fá rækjubáta að veiðum, hvað veldur??. er veiði svona léleg. Ja ef skoðaðar eru aflatölur að rækjubátar eru að koma með um og yfir 40 tonn í róðri þá er kanski ekki hægt að segja það.
Er verðið svona lágt?. það getur verið enn allavega er kvótaleigan á rækjunni mjög lág.
enn liður í þessu getur verið að olíuverð er orðið alveg svimandi hátt og það kanski fælir menn frá því að leggja útí rækjuveiðar.
Skrifað af Gísli.R
