Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
17.06.2008 07:09
Ein gömul og góð
Mynd Gísli Reynisson
Ég luma á nokkrum gömlum myndum sem ég hef tekið í gegnum tíðina. set hérna inn eina.
Myndin hérna er tekinn árið 1995 .þá var ég á þessum öðling Bergi Vigfúsi GK sem lengst af var Skógey SF frá Hornafirði.
Þarna var Grétar Mar skipstjóri og eins og sjá má var ekkert verið að spara netin. Mest vorum við með 17 trossur og hver var 10 neta. Að meðaltali voru við með 10 til 12 trossur útí í einu.
Helvíti vel gekk að fiska og mér telst svo til að við höfum sett íslandsmet því í ágúst það ár fengum við tæp 300 tonn í netin í 26 sjóferðum.
og að lokum þar sem þessi færsla er skrifuð þann 17 júní þá óska ég öllum landsmönnum til hamingju með daginn.
Skrifað af Gísli.R
