Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
09.06.2008 01:10
Handfæraveiðar
Það kom smá áskorun á mig um að hafa handfæralista á síðunni.
sú áskorun á ansi vel rétt á sér þar sem handfæraveiðar eru langmest stundaðar yfir sumarmánuðina. Ég er ekki búinn að taka ákvörðun um hvort ég hafi þannig lista hérna, því það er ansi erfitt verkefni.
t.d í maí þá reiknaði ég samtals 157 handfærabáta um allt landið og til þess að finna þessa 157 báta þá fór í í gegnum öll skipaskrárnúmer á landinu, enn ég er búin að prenta þau út og samtals eru þetta 1870 númer sem ég fer í gegnum.
útfrá þessu er hægt að sjá hversu mikill tími fer í útreikinga á bátunum. reyndar eru nokkuð mörg þessara skipaskrárnúmera ekki gerð út.
Annars að færaveiðunum þá voru 2 bátar sem yfir 30 tonn náðu núna í maí og voru það Sæstjarnan SH og Birta SH. Ragnari Alfreðs HU sem gerir út frá sandgerði var með 24 tonn í einungis 5 ferðum komst mest í tæp 7 tonn, mest allt ufsi.
Ef skoðaðir eru þeir bátar sem voru með stærstu landanir í maí þá líta 15 efstu bátarnir svona út.
1 Ragnar Alfreðs HU 6,6 tonn.
2. Víkurröst VE 6,6 tonn
3. Eyjólfur Ólafsson GK 5,5 tonn.
4. Grímur AK 5,1 tonn.
5. Skarpur BA 4,3 tonn
6. Hlöddi VE 4,3 tonn
7. Gugga ÍS 4,3 tonn
8. Lilja BA 4,2 tonn
9. Sæstjarnan SH 3,5 tonn
10. Birgir GK 3,5 tonn áður Birgir ÁR
11. Rakel SH 3,4 tonn
12. Stakkhamar SH 3,3 tonn
13. Heiðrún SH 3,3 tonn
14. Assa BA 3,1 tonn
15. Rán SH 3,1 tonn
Varðandi listann þá mun ég reyna að koma einhverjum tölum hérna inn á síðuna, þó svo að ég geti kanski ekki komið með heilstæðan lista.
Skrifað af Gísli.R
