Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
08.06.2008 02:34
1000 tonn á mánuði!!!
Mynd Þorgeir Baldursson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
kanski ekki 1000 tonn hver mánuð. Allavega eitt allasérstæðasta fiskiskip íslenska flotans hlýtur að teljast vera kúfiskskipið Fossá ÞH sem gerir út frá Þórshöfn.
Þó svo að skipið hafi ekki verið gert út á fullum afköstum undanfarin misseri þá má segja að skipið sé komið fullt. Fossá ÞH er búinn að róa síðan í byrjun mars og í maí þá landaði Fossá ÞH tæpum 1000 tonnum í 9 ferðum, mest 117 tonn. búið er að landa einu sinni úr Fossá ÞH núna í júní, tæpum 120 tonnum.
Mjög erfitt er að flokka Fossá ÞH. Í vertíðaruppgjörinu sem birtist í sjómannadagsblaði Fiskifrétta þá flokka ég þar Fossá ÞH með bátunum. Og í útreikngum mínum þá er Fossá ÞH flokkuð með rækju, sæbjúgu og ígulkerjabátum.
Skrifað af Gísli.R
