Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
05.06.2008 21:40
Nýbreytni hjá Línuskipunum
Mynd Alfons Finnson færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Að setja fisk í gáma er nokkuð algengt meðal togara og trollbáta. Einstaka dragnótabátar setja stóran hluta af afla sínum í gáma.
Hingað til þá hafa línubátarnir nokkurn veginn verið lausir við að setja fiska í gáma. Nú reyndar ber svo við að tveir línubátar settu smá hluta af afla sínum í gáma. Eru það bátarnir Sturla GK og Tómas Þorvaldsson GK.
Vekur þetta nokkra athygli þar sem mjög sjaldgjæft er að línubátarnir setji fisk í gáma. Hef ég t.d aldrei séð það áður fyrr í gegnum útreikninga mína hjá línubátnunum.
Annars setti Sturla GK 3 gáma frá sér og var þar að mestu Blálanga eða tæp 46 tonn alls.
Tómas Þorvaldsson GK setti í 2 gáma og var þar eins og hjá Sturlu GK blálanga uppistaðan eða rúm 30 tonn.
Ef þessi fiskur hefði farið á markað og miðað við meðalverð síðustu viku þá má áætla að hérna innanlands hefði aflaverðmæti þessa afla verið um 5.7 milljónir. Ekki hef ég tölur yfir aflaverðmætið eftir söluna erlendis, enn það væri fróðlegt að sjá muninn.
Skrifað af Gísli.R
