Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 136
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370780
Samtals gestir: 530320
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 02:17:59

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

05.06.2008 21:40

Nýbreytni hjá Línuskipunum

Mynd Alfons Finnson færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Að setja fisk í gáma er nokkuð algengt meðal togara og trollbáta.  Einstaka dragnótabátar setja stóran hluta af afla sínum í gáma.  
Hingað til þá hafa línubátarnir nokkurn veginn verið lausir við að setja fiska í gáma.  Nú reyndar ber svo við að tveir línubátar settu smá hluta af afla sínum í gáma.  Eru það bátarnir Sturla GK og Tómas Þorvaldsson GK.
Vekur þetta nokkra athygli þar sem mjög sjaldgjæft er að línubátarnir setji fisk í gáma.  Hef ég t.d aldrei séð það áður fyrr í gegnum útreikninga mína hjá línubátnunum.
Annars setti Sturla GK 3 gáma frá sér og var þar að mestu Blálanga eða tæp 46 tonn alls.
Tómas Þorvaldsson GK setti í 2 gáma og var þar eins og hjá Sturlu GK blálanga uppistaðan eða rúm 30 tonn.  
Ef þessi fiskur hefði farið á markað og miðað við meðalverð síðustu viku þá má áætla að hérna innanlands hefði aflaverðmæti þessa afla verið um 5.7 milljónir.  Ekki hef ég tölur yfir aflaverðmætið eftir söluna erlendis, enn það væri fróðlegt að sjá muninn.

Tenglar