Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

31.05.2008 20:41

Systurskip

Í fiskiskipaflota okkar íslendinga er ansi mikið um báta sem eru nokkurn veginn samskonar.  Smíðaðir t.d af sömu skipasmíðastöð.  Má þar nefna Kínabátanna svokölluðu.  Óseyjarbátanna,  Esjar SH, Valgerði BA og Hafdísi GK.  
Kanski einna þekktstu systurskipin eða systurbátarnir voru bátalónsbátarnir svokölluðu, er ég þá að tala um eikarbátanna.  Ég man sjálfur mjög vel eftir þeim á vertíð í Sandgerði því þeir voru ansi margir.  Sjá hversu minnugur ég er.  þeir bátar sem ég man eftir sem t.d réru frá Sandgerði voru t.d.  Margrét HF, Máni HF, Knarranes KE, Óskasteinn ÁR og svo þeir tveir sem voru hvað þekktastir. Fram KE og Sóley KE.

Nóg um það.  Á Rifi var núna í ársbyrjun keyptur aftur til landsins Tjaldur II sem er systurskip Tjalds SH.  Tjaldur II SH heitir  í dag Örvar SH.
Tjaldur SH hefur frá áramótum fiskað ívið meira heldur enn Örvar SH, og munaði t.d rétt tæpum 400 tonnum á þeim á vetrarvertíðinni.

Núna í maí má segja að bilið hafi sjaldan verið eins mikið.  Örvar SH er búinn að landa í 4 skipti alls 144 tonnum, eða 36 tonn í löndun.  Mest 45 tonn.

Tjaldur SH aftur á móti er búinn að landa 5 skipti alls 314 tonnum, eða tæp 63 tonn í löndun.  Mest hefur Tjaldur SH komist í 87 tonn í einni ferðinni.
Finnst mér þessi aflamunur á systurskipunum all svakalega mikill

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1183
Gestir í dag: 318
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611855
Samtals gestir: 580997
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 21:14:22

Tenglar