Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 2017
Gestir í dag: 435
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364167
Samtals gestir: 529055
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 21:43:21

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

31.05.2008 02:40

Hörku dragnótaveiði fyrir austan.

Það er nokkuð þekkt að dragnótabátar flækist ansi víða til að komast í fisk. Bátar sunnanlands færa sig á milli hafna á svæðinu frá sandgerði og til Vestmannaeyja.  Núna bregður svo við að nokkrir bátar hafa farið alla leið austur á Höfn í Hornafjörð.  Eru það Siggi Bjarna GK, Benni Sæm og Örn KE svo einhverjir sé nefndir.  
Áður enn þessir bátar komu austur þá má segja að einungis 2 bátar hafi stundað dragnótaveiðar þarna á þessu svæði.  Bátarnir sem ég á við eru Hvanney SF og Tjálfi SU sem er smábátur og rær frá Djúpavogi.  Við þess tvo báta má bæta við Geir ÞH enn hann hefur verið að landa á svæðinu frá Djúpavogi og alveg til Þórshafnar.  

Byrjum á Tjálfa SU.  Honum hefur gengið ansi vel og hefur komist upp í rúm 7 tonn, Ef Tjálfi SU væri á smábátalistanum hérna á síðunni þá væri hann inná topp 30 vegna þess að afli bátsins er kominn í tæp 80 tonn núna í maí, og verður það að teljast nokkuð góður afli.

Hvanney SF aftur má móti er búinn að mokfiska.  Báturin hefur tvisvar komist í tæp 50 tonn í löndun og í báðum þeim löndunum var uppistaðan steinbítur og skarkoli.  Er Hvanney SF að skríða í 400 tonn í maí mánuði og er það afbragsgóður afli að ná 400 tonnum í dragnótina á mánuði.

Siggi Bjarna GK er búinn að landa þrisvar á Hornafirði samtals 58 tonni,  
Benni Sæm GK er búinn að vera þar nokkru lengur og er búinn að landa 6 sinnum alls tæp 93 tonnum, eða rétt rúm 15 tonn í róðri.
Örn KE er búin að landa 5 sinnum og með afla uppá tæp 125 tonn eða 25 tonn í róðri.  Örn KE var með tæp 34 tonn í fyrstu löndun sinni fyrir austan.  

Tenglar