Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
30.05.2008 20:49
Góð netaveiði hjá Sæþóri EA
Mynd Ragnar Pálsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir
Þótt svo að vetrarvertíðinni hafi formlega lokið þann 11 maí síðastliðinn, þá eru enn þá nokkrir bátar sem eru enn á netaveiðum. Flestir netabátarnir skiptu yfir á önnur veiðarfæri, eins og dragnót, humar eða skötuselsnet.
Sæþór EA sem réri mest alla vertíðina frá Grundarfirði hefur núna í maí róið á netum frá sama stað, og má segja að honum hafi gengið afbragsvel. Báturinn tók smá pásu eftir 11 maí, byrjaði svo þann 14 og réri hvern einasta dag fram til 26 maí. í fyrstu 6 ferðunum þá kom báturinn með 48.9 tonn eða um 8 tonn í róðri. Komst báturinn tvisvar yfir 10 tonn í róðri og mest í tæp 13 tonn. Heildarafli Sæþórs EA í maí er kominn yfir 100 tonn, og verður það að teljast mjög svo góður afli hjá bátnum.
Segja má að vertíðinni sé síður enn svo lokið hjá áhöfinni á Sæþóri EA.
Skrifað af Gísli.R
