Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

28.05.2008 07:51

Lúðuveiðar

Nokkur undanfarin sumur þá hafa fáeinir bátar lagt sig í það að stunda lúðuveiðar á línu.  Helst hafa þetta verið stórir bátar,  eins og Dúa AH , ( fyrrum Hafnarberg RE),  Litlaberg ÁR og Fagurey HF.  Smábáturinn Ólafur HF hefur einnig bæst í hópinn.
Núna í mai þá er ég með vitneskju um tvo báta sem hfa  stundað lúðuveiðarnar.  Það sem er kanski merkilegt við þá tvo báta er að báðir eru smábátar.  Geirfugl GK er búinn að fara eina ferð og kom með tæp 3.9 tonn.  Ólafur HF er búinn að landa tvisvar rúmum 9 tonnum.  Mest hefur Ólafur HF komist í tæp 6 tonn í róðri.  
Mjög gott verð hefur fengist fyrir lúðuna og ef litið er á meðalverð á lúðu síðust 7 daga, sem er í kringum 550 krónur.  Þá var aflaverðmæti Geirfugls GK 2.1 milljón fyrir einu löndun bátsins á lúðu.
Aflaverðmæti Ólafs HF er þá komið í 4.9 milljónir.  Reyndar landaði Ólafur HF slatta af lúðu í apríl og því má áætla að aflaverðmæti hans sé komið yfir 6 milljónir einngis á lúðu.
Þessir tveir bátar fá félagsskap á næstunni því verið er að undirbúa Gunnu Betu RE á veiðarnar.  Gunna Beta RE hét áður Hafgeir HU.  Er sá bátur nokkru minni  heldur enn hinir tveir sem áður eru nefndir. 

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1183
Gestir í dag: 318
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611855
Samtals gestir: 580997
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 21:14:22

Tenglar