Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
27.05.2008 05:21
Stór róður hjá Grími AK
Mynd Guðmundur St. Valdimarsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Grímur AK byrjaði núna í maí að róa á handfærum frá Arnarstapa. Óhætt er að segja að vel hafi gengið hjá bátnum. Þann 14 þá kom báturinn með rétt rúm 3 tonn að landi. Stóri róðurinn kom svo þann 16 , því þá landaði báturinn rétt tæpu 5.1 tonni, og skiptist sá afli á tvær tegundir. Ufsa og Þorsk. 2.4 tonn af þorski og 2.7 tonn af ufsa. Er báturinn kominn yfir 20 tonna heildarafla núna í maí í 8 ferðum eða um 2.6 tonn í róðri. verður það að teljast nokkuð góður afli.
Þess má geta að fleiri handfærabátar hafa verið í mjög góðri ufsaveiði og má þar helst nefna Ragnar Alfreðs HU sem rær frá Sandgerði

Skrifað af Gísli.R
