Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

26.05.2008 22:04

Sumarvertíðinn hafinn.



Já hvaða sumarvertíð.?.  Hér á landi eru til alls konar af vertíðum.  Vetrarvertíð,  loðnuvertíð,  síldarvertíð og humarvertíð svo eitthvað sé tekið.  Núna uppá síðkasti hefur ein ný vertíð verið að skjóta nokkrum rótum hér á landi, og þá helst á Vestfjörðum.  Jú er að tala um sjóstangarvertíðina.
Núna í Maí þá má segja að sjóstangarbátarnir séu komnir á fullt.  Gera þeir út frá Súðavík,  Suðureyri, Flateyri og Tálknafirði. Mikið líf fylgir þessum veiðum, og teygist vinnan frá vestfjörðum og hingað yfir á suðvesturhornið.  Því þónokkur keyrsla fylgir sjóstangarveiðimönnunum,  og hefur rútufyrirtækið Teitur séð um þá keyrslu hérna suðvestanlands.  

Allavega það sem af er maí þá eru kominn á land tæp 37 tonn af fiski, er það mestmegnis þorskur,  einnig nokkuð af ýsu og steinbít.  Mest virðst veiðin vera hjá bátunum sem róa frá Suðureyri.  Mesti afli á bát þar er tæp 700 kíló eftir daginn, og verður það að teljast nokkuð mikill afli.
10 efstu bátarnir sem komið er í maí eru eftirfarandi:

1.   Bobby 6 ÍS         3,129          9
2.   Bobby 3 ÍS         2,833          9
3.   Bobby 11 ÍS       2,827          7
4.   Bobby 16 ÍS       2,214          12
5.   Stuttnefja BA      2,186          12... Rær frá Tálknafirði.
6.   Bobby 9 ÍS         2,139           9
7.   Bobby 7 ÍS         1,942           8
8.   Langvía BA         1,899          11.  rær frá súðavík
9.   Bobby 1 ÍS           1,874         8
10. Már BA                1,537          9.  rær frá Tálknafirði.

Að lokum má geta þess að á fiskistofuvefnum er kominn nýr flokkur sem skilgreinir veiðarfærin, og er það einfaldlega sjóstöng.  Bátarnir voru nefnilega alltaf skráðir sem handfærabátar.  



Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1183
Gestir í dag: 318
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611855
Samtals gestir: 580997
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 21:14:22

Tenglar