Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
23.05.2008 04:46
smá tilkynning!!
Hérna neðar á síðunni er mynd af mér í ansi asnalegum búningi, ástæðan jú það var verið að steggja mig. Málið er að á morgun þann 24 maí þá ætla ég að gifta mig í Sandgerði. Sú heppna ef ég má orða það þannig heitir Helena María Árnadóttir. Ef einhver hérna sem skoðar síðuna er á frystitogaranum Þór HF þá er faðir hennar vélstjóri á Þór HF.
Ég á ekki eftir að geta sinnt síðunni eins og ég hefði viljað líklegast næstu daga framyfir helgi. Enn þó get ég hugsanlega reynt að skjóta inn einni frétt eða uppfæringu á lista.
Þó get ég sagt tvennt..
Hið fyrra er að samkvæmt niðurstöður könnunnarnir hérna um Kristinn SH þá verður hann ekki tekinn með í krókalistann. 70% svarenda sögðu nei.
Hið seinna er að frá og með 1 júní næstkomandi þá verður sú nýbreytini tekinn upp hérna á síðunni að dragnótalistinn hefur göngu sína. Ég hef fengið ansi margar fyrirspurnir og óskir um að ég setji fram þannig lista. Ég hef reyndar ekki ákveðið hversu stór hann verður. t.d efstu 10, 15 eða 20 bátarnir.
kveð að sinni.
Skrifað af Gísli.R
