Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
27.04.2008 02:02
Ísafjörður og 1965
Jæja. þið verðið að afsaka hversu lítið hefur komið inná síðuna undanfarið. Enn núna er ég staddur á Ísafirði. Mér þykir alltaf ákaflega notalegt að koma til Ísafjarðar. Hef ég nú oftast komið þangað af sjó eða þá úr lofti, enn í þetta sinn var það í bíl. Þaðan og frá bolungarvík réri ég í um 4 mánuði þegar ég var á rækjuveiðunum þaðan. Núna er reyndar ekkieins mikið rækjulíf þar og var t.d á árinu 1965 sem ég er að vinna í núna nýverið.
Og því svona til þess að tengja saman bæinn sem ég er í núna og við árið 1965 þá ætla ég að renna yfir þá báta sem e´g er kominn með á blað fyrir árið 1965. Þess má geta að skýrlsunar byrjðu í Vestmannaeyjum og fara vestur um landið. Og var ég að klára Keflavík núna. Enn þrátt fyrir það eru komnir um 400 bátar á skrá bara á svæðinu vestmannaeyjar-Keflavík..
Freyja ÍS 364, Þessi bátur breyttist síðan yfir í Freyja GK 364 og var gerður út á sama nafni í þónokkuð mörg ár, og undir það síðasta sem 1927 Valdi SH. Þarna þetta árið þá var báturinn á humartrolli og svo línu um haustið og er afli um 274 tonn í 64 ferðum. Humarafli Freyja ÍS varð 19,6 tonn í 11 ferðum miðað við óslægt.
Annan bát hef ég sem fór á humar og er það Sæbjörn ÍS 16 humarafli hans var 8,1 tonn í 3 ferðum eða um 2.7 tonn í róðri, miðast það líka við óslitið. Var báturinn bara á humri og nokkrar ferðir á trolli og afli 33 tonn í 8 ferðum.
Nokkuð bátsnöfn tengd Ísafirði hafa haldið sér t.d frá árinu 1965 og til dagsins í dag. nægir þar að nefna Júlíus Geirmundsson ÍS og Pál Pálsson ÍS. Eitt annað nafn hefur haldið sér má segja nokkru lengur heldur enn þessi nöfn og er það nafnið Gunnvör ÍS 270. Það nafn er t.d til á báti í dag, og árið 1965 þá var þessi bátur á trolli við suðurlandið um sumarið og fékk rúm 73 tonn í 18 ferðum, mest um 5 tonn í róðri.
Að auki er t.d Guðrún Jónsdóttir ÍS, Hafrún ÍS , Sólrún ÍS kominn á blað enn þeir bátar eiga það allir sameiginlegt að hafa verið á síldveiðum og landað meðafla til vinnslu. t.d ufsa eða þorski. Var það oftast um litla skammta að ræða, þó var t.d Guðrún Jónsdóttir IS með tæp 9 tonn í einni löndun sem landað var í Vestmannaeyjum.
Læt þessu yfirliti lokið hérna, enn næst á dagskrá hérna á síðunni verður að uppfæra krókalistann og sjá hvort Vestfirski báturinn Birta BA sem fór úr 29 sætinu og í það efsta haldi sínu sæti.
Kveð að vestan með bros á vör, því alltaf líður mér vel hérna á Ísafirði.
Skrifað af Gísli.R
