Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

25.04.2008 01:46

togari eða troll

Ég hef verið að velta nokkru fyrir mér undanfarið.  Enn það er munurinn á þeim bátum sem eru flokkaðir sem Trollbátar og Togarar.  
Núna í dag eru togararnir orðnir ekki nema rétt um 20 talsins sem eftir eru.  Af þessum 20 togurunum eru nokkrir sem fá að stunda veiðar að 4 mílum, og má þar nefna Suðurey VE, Gullberg VE, Berg VE, Sóley Sigurjóns GK bæði nýja og gamla togaranna. Berglín GK.
stærstu landanir þessara togara hafa verið um og yfir 100 tonnin, flestar landanir hjá þeum eru þó á bilinu 75 til 90 tonn.  
Núna uppá síðkastið þá hafa verið að koma til landsins nokkrir nýir TROLLbátar, má þar nefna.  Vörð EA, Bergey VE, Vestmannaey VE og Dala Rafn VE.  Og er ný Helga RE á leiðinni.  Stærstu landanir þessara skipa hafa verið frá 75 tonni og uppí 95 tonn.  
til að mynda þá er stærsta löndun Bergey VE um 94 tonn núna í apríl.  
það eina sem skilur þessi skip frá litlu togurunum eru það að nýju TROLLbátarnir eru allir sniðnir að 30 metrunum. Enn  hafa líklegast sömu burðargetu og litlu togarnir, sem þó eru lengri.  Er þá ekki rétt að kalla þessa nýja Trollbáta sem Togara.???.
Ástæða þess að ég hef verið að velta þessu fyrir mér er sú að ég hef séð um að reikna saman bæði togara og trollbáta fyrir aflalistanna í Fiskifréttum.  Eins og sjá má á þá er burðargeta þessara skipa ekki svo ósvipuð og því hef ég verið að hugsa um að taka þá Trollbáta sem eru með svipaða burðargetu og litlutogarnir, t.d þeir sem eru með yfir 70 tonna burðargetu og flokka þá sem togara.  þótt að þeir flokkist ekki þannig.  
Til að mynd í mars þá fóru tveir Trollbátar yfir 500 tonna heildarafla. það þykir ansi góður afli, og miðað við togara þá þykir það mjög góður afli.  
þau skip sem myndu þá falla inní þessa nýju flokkun mína myndu þá verða eftirfarandi
Vörður EA
Vestmannaey VE
Bergey VE
Steinunn SF
Hringur SH
Dala Rafn VE
nýja Helga RE
Reyndar eru Smáey VE og Frár VE þarna rétt undir enn þeir hafa mest komið með á milli 60 og 68 tonn.

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1154
Gestir í dag: 315
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611826
Samtals gestir: 580994
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 20:53:20

Tenglar