Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 221
Gestir í dag: 85
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370865
Samtals gestir: 530348
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:40:23

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

17.04.2008 18:35

400 tonn og yfir árið 1965


Mynd Gísli Reynisson

Núna er ég byrjaður að fara yfir árið 1960 og til 1970 í aflaskýrslum. 
og eins og vanalega þegar farið er svona langt aftur í tímann þá eru þarna oft á tíðum gríðarstórar aflatölur.  Og ætla ég að nefna hérna smá dæmi. 
Eins og kanski flestir hafa tekið eftir varðandi netalistann þá er ég með 400 tonna viðmið gagnvart netabátunum, og reynar öllum vertíðarbátum.  Núna í mars árið 2008 þá voru það 5 bátar sem komust yfir 400 tonnin.  Einnig er hægt að skoða vertíðina 2001 einnig til samanburðar. 
Ég er núna í árinu 1965, og var að klára hluta af Vestmannaeyjaflotanum, og nú þegar eru 4 bátar komnir yfir 400 tonnin.  Þessir 4 bátar náðu yfir 400 tonnin í apríl árið 1965.

Ver VE 200 sem var 70 brl eikarbátur var með 409,3 tonn í 25 ferðum eða rúm 16 tonn í róðri.  Annar mælikvarði er t.d að reikna þennan meðalafla uppí 6 sjóferðir, enn oft var mjög algengt að róa 6 sjóferðir á viku, og þá reiknast afli Vers VE sem 98 tonn í 6 ferðum,  sem er mjög góður afli.

Lundi VE sem er 52 brl bátur var með 456,8 tonn í 26 ferðum eða rúm 17 tonn í róðri, og ef það er reiknað uppí 6 ferðir þá eru það 105 tonn í 6 ferðum.

Stígandi VE  sem í dag heitir Drífa SH og er 73 brl stálbátur var með 496 tonn í 25 ferðum, eða tæp 20 tonn í róðri, uppreiknað í 6 ferðir þá er það 119 tonn  í 6 ferðum. 

Og sá bátur var næsthæstur í þessu yfirliti er jafnframt sá bátur sem vakti mesta athygli mína.  Er það báturinn Björg SU 9.  Þessi bátur var einungis 55 brl eikarbátur, enn fiskaði 474 tonn í einungis 15 sjóferðum sem gerir tæp 32 tonn í róðri.
þess má geta að á tímabilinu 1 til 15 apríl þá landaði Björg SU 258 tonni í einungis 6 sjóferðum, eða 43 tonn í róðri.  Ég nota oft orðið kafbátur yfir báta sem koma drekkhlaðnir að landi og það orð á pottþétt við Björg SU í apríl árið 1965

Tenglar