Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 195
Gestir í dag: 77
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370839
Samtals gestir: 530340
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:01:50

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

17.04.2008 19:37

Metafli hjá Eini SU



Myndir Guðmundur Gylfasson

Nýverið þá var Muggur SF keyptur til Eskifjarðar og fékk þar nafnið Einir SU.
Byrjaði báturinn að róa núna í byrjun febrúar, og var í nokkru kroppi fram til núna í miðjan apríl.
Þann 13 apríl núna síðastliðin þá er skráður afli á bátinn 10,3 tonn.  Guðmundur Gylfasson sagði í samtali við Aflafréttir.com að hann hafði þurft að fara tvær ferðir út til þess að ná aflanum.  Lagði hann 17 bjóð og þegar hann var búinn að draga 8 bjóð þá kom hann í land með 6 tonn, það reiknast með 750 kíló á bjóð.  Má segja að það sé íslandsmet,  fór báturinn svo aftur út og náði í restina af bjóðunum 9 bjóð og var með 4,3 tonn eða 480 kíló á bjóð.  Þessi afli fékkst á Brjótnum svokallaða sem er í um 2 tíma stími frá Eskifirði, og var allt 4 til 5 kílóa steinbítur. Þess má geta að Guðmundur rær einn á Eini SU, og sendi hann mér myndir af bátnum koma til hafnar á Eskifirði, og er hann þarna að með rúm 6 tonn um borð.

Þessi góði afli hélst svo deginum eftir þá landaði Einir SU 6,1 tonni á einungis 13 bjóð eða um 470 kíló á bjóð.  Er báturinn búinn að fá 23 tonn núna á skömmum tíma í einungis 4 ferðum. 

Þess má geta að nafnið Einir SU er Eskfirðingum mjög þekkt,  þar sem nokkrir bátar með þessu nafnið hafa verið gerðir út, og er elsti báturinn með Einisnafnininu bátur sem kom til Eskifjarðar árið 1934.  Er Einisnafnið því líklegast eitt elsta nafn í bátasögu Eskfirðinga.

Tenglar