Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
15.04.2008 02:15
Arnarfjörður
Það eru orðin nokkur ár síðan að innanfjarðarkvóti var gefinn út. Veiðar við húnaflóa, í Axarfirði og í Ísafjarðardjúpi hafa ekki verið stundaðar nokkur undanfarin ár, og líka má þá nefna í þessu samhengi Eldeyjarsvæðið sem flokkaðist sem innanfjarðarrækjuveiðar. Arnarfjörðurinn hefur hins vegar getað haldist opinn fyrir rækjuveiðum lengur enn hinir staðirnir.
Í byrjun mars í ár þá var gefinn út 150 tonna rækjukvóti í Arnarfirðinum og deildist sá kvóti niður á 6 báta.
Ásdís GK fékk 12.5 tonn
Höfrungur BA, Brynjar BA, Askur GK og Jörundur Bjarnarsson BA fengu allir 25 tonn, og Pilot BA fékk mest eða 37.5 tonn.
Af þessum bátum eru tveir bátar byrjaðir veiðar og eru það Höfrungur BA og Brynjar BA. Vel hefur gengið hjá báðum bátunum, hefur t.d Höfrungur BA komist í 9.5 tonn af rækju sem verður að teljast fullfermi hjá honum.
Afli bátanna tveggja er orðin hjá Brynjari BA 23.1 tonn í 8 ferðum, þar af 13.5 tonn í 4 ferðum. og Höfrungur BA er kominn með 30.5 tonn.
Eins og staðan er núna þá er Brynjar BA að verða búinn með sinn kvóta enn Höfrungur BA er búinn að veiða sinn kvóta enn fékk bætur og 2 tonn frá Aski GK.
Skrifað af Gísli.R
