Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 252
Gestir í dag: 93
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370896
Samtals gestir: 530356
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 04:16:34

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

18.04.2008 01:32

Netabátar á vertíð 2001


Jæja ég tók mig til og reiknaði saman ansi marga netabáta á vertíðinni árið 2001. 
það tók mig samtals 25 klukkustundir að reikna og færa bátanna inná vefinn.
Alls eru þeir 170 sem eru komnir á blað núna og miðast afli þeirra við 31 mars.

Listinn er núna staðsettur í Flokkum hérna við hliðina undir nafninu Net Vertíð 2001.

Ef klikkað er á þann tengil þá kemur taflann upp.

Enn svona smá yfirlit yfir tölfuna þá kemur t.d í ljós að Brynjólfur ÁR var hæstur báta í mars með 542 tonn í einungis 21 ferð.

Stafnes KE landaði í 9 skipti í mars enn var samt með 372 tonn og fór tvisvar yfir 70 tonn í róðri.  Gríðarstórir róðrar eru hjá mörgum bátanna.

Af minni bátunum vekur kanski helsta athygli að Guðfinnur KE er aflahæsti bátur undir 100 BT, og jafnframt eini báturinn af þeirri stærð sem var komin yfir 300 tonn í lok mars.

Ársæll Sigurðsson HF ( 1373) er hæstur báta undir 50BT, enn hann er svo til sjónarmun á undan Bárði SH ( gamla Bárði SH).  Ársæll Sigurðsson HF réri frá Þorlákshöfn í mars og komst meðal annar í tvö skipti yfir 20 tonn í róðri í þeim mánuði. 

Hrólfur AK fær samt titilinn sjósækari mars mánaðarins, þar sem áhöfn bátsins gerði sér lítið fyrir og réri alla daga Mars.  eða 31 sjóferð,  Bendir það eindregið til þess að vel hafi viðrað til sjósóknar í þeim mánuði.

Annars fyrir þá sem hafa áhuga á að kíkja á tölfuna, hún er eins og ég segi ansi löng og stór þá klikkið á Net Vertíð 2001, og rennið yfir gripinn.

Ef menn hafa eitthvað um þetta brjálæði í mér að segja þá bara látið vaða. 

ég mun svo halda áfram að uppfæra vertíðina 2001, enn tek næst fyrir apríl mánuð.

Tenglar