Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 160
Gestir í dag: 62
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2370804
Samtals gestir: 530325
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 02:41:56
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
22.03.2008 16:12
Árni í Teigi GK
Mynd Villi Ara. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Eins og flestir hafa tekið eftir þá er kominn hálfleikur á vetrarvertíðinni. Eða réttara sagt frí, sem líklegast flestir sjómenn á bátunum eru mjög fegnir að komast í. Því það er búið að vera mokveiði t.d núna í mars og bæði línubátar, dragnótabátar, trollbátar og ekki síst netabátarnir hafa verið að koma með fullfermi að landi.
Ég hef nú reyndar tekið svo stórt uppí mig að kalla þessa báta sem koma með fullfermi að landi, kafbáta.
Allavega þá fékk ég senda mynd sem Villi Ara á Árna í Teigi GK tók á vertíðinni 2007.
Eins og sést á myndinni þá er báturinn allsvakalega siginn, og voru þetta um 18.5 tonn. sem fengust í einungis 5 trossur eða um 4 tonn í trossu.
Enn er afli Árna á Teigi GK meiri á vertíðinni 2007 miðað við nú.?
Ég fór í smá rannsóknarleiðangur og niðurstaðan er þessi.
núna á vertíðinni 2008 þá er báturinn búinn að fara í 39 sjóferðir og kominn með 126,7 tonn, 3,3 tonn að meðaltali í róðri
í fyrra þá var aflinn 78,9 tonn í 35 ferðum eða 2,2 tonn í róðri, og það skal tekið fram að þarna miðað ég við 18 mars sem er sá tími sem er kominn á netalistann núna árið 2008.
Hérna neðar á síðunni er lítil frétt sem heitir "Er meiri afli núna heldur enn 2002", og svarið var Já. og svo furðulega virðst vera að allavega varðandi Árna á Teigi GK þá er meiri afli núna heldur enn í fyrra. skýtur mjög skökku við þar sem kvótinn var skorinn svona mikið niður.
Þess má svo að lokum geta að mesti afli Árna í Teigi GK núna á vertíðinni er tæp 10 tonn.
78,946/35
Skrifað af Gísli R
