Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
12.03.2008 09:31
Afli frystitogara í febrúar

Mynd Guðmundur St. Valdimarsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Febrúar listinn lítur hérna dagsins ljós. Þónokkrar meiri landanir voru í febrúar heldur enn í janúar. Smuguskipinn lönduðu t.d öll í febrúar. og voru þau eftirfarandi. Brimnes RE, Víðir EA, Sigurbjörg ÓF og Þór HF. Reyndar var afli hjá Þór HF 340 tonn í barnetshafinu, restin var á heimamiðum. Reyndar er rétt að taka fram að það er tæplega 4 daga sigling á miðin í úthafinu og skekkir það nokkuð varðandi afla per úthaldsdag.
Helga María AK varð aflahæst í febrúar, reyndar ekki nema sjónarmun á undan Örfirsey RE. Helga María AK landaði reyndar tvisvar sinnum og eru úthaldsdagatölurnar samanlagðar fyrir báða túranna. sá fyrri var 30 dagar, enn sá seinni ekki nema 18 dagar. í þeim túr var afli per dag 21,4 tonn.
Örifirsey RE var hæst miðað við afla per úthaldsdag, enn ef t.d smuguskipin eru reiknuð þannig að sigling til og frá miðum dettur út þá breytast tölurnar nokkuð.
Þá myndi afli hjá Brimnesi RE og Þór HF fara úr rúmum 21 tonni í 27 tonn á dag. og hjá Sigurbjörgu ÓF úr tæpum 15 tonnum og í rúm 18 tonn á dag. Engu að síður þá væri Örfirsey RE hæst.
Málmey SK var með hátt í 534 tonn af ufsa í afla sínum og var með langmesta ufsaafla allra frystitogara.
Og eins og í janúar þá eru núna öll skip á listanum
| Sæti | Nafn | Afli | Landanir | Úthaldsdagar | Afli.per.dag |
| 1 | Helga María AK | 951,7 | 2 | 48 | 19,8 |
| 2 | Örfirsey RE | 942,7 | 1 | 33 | 28,5 |
| 3 | Málmey SK | 851,5 | 1 | 35 | 24,3 |
| 4 | Brimnes RE | 764,8 | 1 | 36 | 21,2 |
| 5 | Höfrungur III AK | 756,2 | 1 | 35 | 21,6 |
| 6 | Þór HF | 747,9 | 1 | 35 | 21,3 |
| 7 | Víðir EA | 681,4 | 1 | 25 | 27,2 |
| 8 | Gnúpur GK | 631,6 | 1 | 31 | 20,3 |
| 9 | Sigurbjörg ÓF | 603,1 | 1 | 41 | 14,7 |
| 10 | Arnar HU | 601,1 | 1 | 33 | 18,2 |
| 11 | Venus HF | 576,2 | 1 | 31 | 18,6 |
| 12 | Baldvin Njálsson GK | 573,1 | 1 | 34 | 16,8 |
| 13 | Mánaberg ÓF | 570,4 | 1 | 26 | 21,9 |
| 14 | Oddeyrin EA | 564,4 | 1 | 24 | 23,5 |
| 15 | Vigri RE | 537,8 | 1 | 32 | 16,8 |
| 16 | Barði NK | 529,6 | 1 | 24 | 22,1 |
| 17 | Júlíus Geirmundsson ÍS | 507,1 | 1 | 32 | 15,8 |
| 18 | Hrafn Sveinbjarnarsson GK | 485,6 | 1 | 31 | 15,6 |
| 19 | Kleifaberg ÓF | 432,3 | 1 | 26 | 16,6 |
| 20 | Guðmundur Í Nesi RE | 292,1 | 1 | 29 | 10,1 |
| 21 | Frosti ÞH | 237,7 | 1 | 28 | 8,5 |
