Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1992
Gestir í dag: 425
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364142
Samtals gestir: 529045
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 21:23:27

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

06.03.2008 11:52

Bræður munu berjast!!


Mynd Alfons Finnsson.  Færi ég honum bestu þakkir fyrir.

Einhverstaðar standa þessu fleygu orð sem heiti pistilins stendur fyrir, enn óhætt er að segja að orðin eigi vel við bátanna Valgerði BA og Esjar SH. Í september í fyrra þá keypti Óskar H Gíslasson fyrrum  skipstjóri á Þorsteini BA, bátinn Báru SH og skírði hann Valgerði, síðan þá má segja að báturinn hafi hreinlega mokfiskað.  Valgerður BA á systurbát sem heitir Esjar SH, og þessir tveir bátar þó litlir séu hafa ekkert gefið þeim stærri eftir í varðandi afla.  Til að mynda þá kom Esjar SH með 24,5 tonn í einni ferðinni á vertíðinni árið 2007.
Í febrúar núna þá voru bátarnir svo til jafnir þegar upp var staðið, báðir með rúmlega 147 tonn afla.  Valgerður BA var með örlítið meiri afla.
Svona til að glöggva sig betur á þessum tveimur bátum þá ætla ég að líta á síðustu 4 róðranna hjá báðum bátum í febrúar og fyrstu 2 róðra í mars.
Esjar SH kemur með 7,5 tonn á Rifi þann 25.  Valgerður BA réri ekki þennan dag heldur deginum eftir og landaði þá á Suðureyri 4,3 tonnum.
Valgerður BA færir sig svo til Ólafsvíkur og kemur með 16,8 tonn þann 27, á sama tíma er Esjar SH með 12,8 tonn.
Esjar SH bætir heldur við þann 28 þegar báturinn landað 20,4 tonnum.  Valgerður BA aftur á móti er ekki með nema 14,6 tonn.
Esjar SH þann 29 er með 13,6 tonn, Valgerður BA aftur á móti 19,6 tonn.
Og svona til að toppa Esjar SH almennilega þá landar Valgerður BA þann 1 mars 21,9 tonni, á sama tíma er Esjar SH með 11,8 tonn.
Þann 3 þá er Valgerður BA með 13,6 tonn, Esjar SH 14,9 tonn.
Eins og sést á þessu þá eru þetta alls 6 róðrar og báðir bátarnir eru í 3 skipti með meiri afla enn hinn. 
og heildaraflinn þessa 6 róðra.  81,1 tonn hjá Esjari SH og 90,8 tonn hjá Valgerði BA, þessi barátta ef má orða það svo er svo aldeilis ekki búinn, og verður áhugavert að fylgjast með þessum tveimur bátum, því núna eru þeir báðir á Rifi. 

Tenglar