Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 448
Gestir í dag: 170
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371092
Samtals gestir: 530433
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:43:30
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
02.03.2008 19:35
Mok í dragnót

mynd Guðmundur st. Valdimarsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Fyrir um 8 dögum síðan þá skrifaði ég pistil um dragnótabátanna og þá sem yfir 10 tonn hafa komist. í dag er sú frétt handónýt, því mokveiði hefur verið hjá dragnótabátunum. Aðalega frá snæfellsnesinum, og útfrá Sandgerði enn þar eru komnir ansi margir dragnótabátar. Lítum á nokkra.
Njáll RE 26 tonn í 4 ferðum mest 14,7 tonn.
Örn KE 52 tonn í 4 ferðum mest 21,8 tonn.
Matthías SH 36 tonn í 3 ferðum.
Steinunn SH 44 tonn í 3 ferðum, mest 21 tonn.
Sæberg SH 38 tonn í 3 ferðum.
Rifsari SH 58 tonn í 3 ferðum, mest 26,7 tonn. og eins og staðan er núna þá er Rifsari SH orðinn aflahæstur.
Í lokin eru systurbátarnir Esjar SH og Valgerður BA. Þrátt fyrir stærarmun þeirra á hinum bátunum þá hafa þeir ekkert gefið þeim eftir. Esjar SH var með 47 tonn í 3 ferðum, og mest 20,4 tonn. og Valgerður BA 51 tonn í 3 ferðum, ( reyndar vantar hugsanlega eitthvað uppá aflann) mest rúm 19 tonn.
Ég er ekki frá því að vakta þurfi Esjar SH og Valgerði BA með myndavél. það væri gaman að sjá þessa tvo báta koma að landi með fullfermi.
p.s Þetta er 3 pistillinn minn í dag, og ég læt lokið í dag. menn verða nú að geta komist yfir að lesa efnið heheh.
Skrifað af Gísli.R
