Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 2084
Gestir í dag: 445
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364234
Samtals gestir: 529065
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 22:11:54
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
26.02.2008 08:28
Línubátar í febrúar
Línubátar sem eru stærri enn 15 tonn, eru flest allir með beitningavél. Einungis tveir aflamarksbátar róa með bala, sem er mikil breyting frá því sem var þegar svo til allir línubátar réru með bala. Í heimabæ mínum Sandgerði voru hérna á árum áður mjög margir stórir línubátar sem réru með bala. t.d Geir Goði GK, Jón Gunnlaugs GK. Freyja GK. Mummi GK, Víðir II GK.
Allavega í dag þá er afli línubátanna eftirfarandi, og sá sem efstur kemur nokkuð á óvart.
Gullhólmi SH búinn að landa einu sinni 48 tonni.
Tómas Þorvaldsson GK 81 tonn í 2 ferðum.
Sighvatur GK 113 tonn í 2 ferðum. mest 79 tonn
Arnarberg ÁR 122 tonn í 3 ferðum, hann er búinn að landa 2 á Grundarfirði.
Rifsnes SH 140 tonn í 3 ferðum, mest 56 tonn.
Grundfirðingur SH 151 tonn í 3 ferðum.
Hrungnir GK 153 tonn í 3 ferðum.
Saxhamar SH 154 tonn í 5 ferðum.
Valdimar GK 158 tonn í 3 ferðum.
Þorlákur ÍS 164 tonn í 4 ferðum, mest 46 tonn.
Kópur BA 168 tonn í 5 ferðum.
Ágúst GK 187 tonn í 2 ferðum, mest 77 tonn.
Jóhanna Gísladóttir ÍS 188 tonn í 3 ferðum.
Kristrún RE 189 tonn í 4 ferðum, mest 68 tonn. Hefur Kristrún RE komist 2 yfir 60 tonn í löndun.
Kristín GK 197 tonn í 3 ferðum.
Sturla GK 203 tonn í 3 ferðum.
TJaldur SH 205 tonn í 4 ferðum, mest 64 tonn.
Örvar SH 216 tonn í 5 ferðum, mest 62 tonn.
Páll Jónsson GK 235 tonn í 4 ferðum.
Núpur BA 246 tonn í 5 ferðum, mest 57 tonn.
Að auki þá er Hafdís GK sem er systurskip Esjars SH og Valgerðar BA, enn Hafdís GK er með beitningavél og rær frá Sandgerði, var báturinn kominn með 58 tonn í 12 ferðum.
Og að lokum þeir tveir balabátar sem hafa róið. Valur ÍS sem rær frá Súðavík var kominn með 27 tonn í 5 ferðum, mest 7,8 tonn og Hafrún HU 31 tonn í 7 ferðum mest 6,8 tonn.
Skrifað af Gísli.R
