Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
25.02.2008 23:34
Hressandi línuveiði suðvestanlands
Það er búið að vera ansi döpur veiði hjá línubátum sem róa á svæðinu frá Reykjavík og suður um til Grindavíkur. Núna síðstu 5 daga hefur heldur betur gengið vel hjá bátunum og hafa margir þeirra komið með mjög stóra landanir.
Lítum á nokkra.
Þórkatla GK var með 21 tonn í 4 ferðum, mest 7,5 tonn, báturinn landaði í Hafnarfirði og í Sandgerði.
Hópsnes GK var með 27 tonn í 4 ferðum, og eins og Þórkatla GK þá landaði báturinn fyrst í Hafnarfirði og síðan í Sandgerði. Þar kom Hópsnesið GK með 11,6 tonn og af því var þorskur 8,2 tonn.
Óli Gísla GK var með 14 tonn í tveimur ferðum, mest 7,1 tonn.
Sama dag og Hópsnesið GK kom með tæpu 12 tonnin sín þá kom Daðey GK til Sandgerðis með 10,1 tonn, þar af var þorskur tæp 7 tonn. Reyndar þá gerði Daðey GK enn betur deginum eftir þegar hann kom til hafnar með 12,8 tonn. tæp 23 tonn í tveimur ferðum.
Hildur GK var með 12 tonn í tveimur ferðum mest 7,2 tonn.
Skoða má nánar stöðuna hjá krókabátnum í nýuppfærðum lista sem kemur hérna á síðuna í dag.
