Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 2084
Gestir í dag: 445
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364234
Samtals gestir: 529065
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 22:11:54

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

21.02.2008 17:09

Trollbátar í febrúar

mjög lítið hef ég fjallað um trollbáta núna í febrúar, skal hérna litið á bátanna víðsvegar um landið.
Byrjum í ísafjarðardúpi.  Núna er reyndar búið að banna trollveiðar þar vegna mikils aukaafla.  Bátarnir voru annars 3 sem voru á trolli, og var Sæbjörn ÍS frá bolungarvík með rún 12 tonn í 4 ferðum.  Halldór Sigurðsson ÍS tæp 18 tonn í 5 ferðum og ALdan ÍS 44 tonn í 8 ferðum.  Aldan ÍS er jafnframt eini báturinn af þessum þremur sem er kominn á dragnótaveiðar.
Vestri BA er gerður út frá Patreksfirði og var kominn með 145 tonn í 4 ferðum,  mest rúm 40 tonn í róðri. 
Hamar SH landar á Rifi og var kominn með tæp 53 tonn í 3 ferðum.
Grundarfjörður sem er ásamt Vestmannaeyjum aðaltrollútgerðarstaður landsins, þar landa þónokkrir trollbátar.  Farsæll SH var kominn með 82 tonn í 3 ferðum.  Eitt er nokkuð merkilegt við aflann af Farsæli enn engnir gámar fóru af Farsæli SH, enn allir aðrir trollbátar í Grundarfirði lönduðu í gáma.  
Þorvarður Lárusson SH er kominn með 112 tonn í 3 ferðum,  Sóley SH 119 tonn í 4 ferðum.  Helgi SH 129 tonn í 4 ferðum , mest 53 tonn.  Sigurborg SH 161 tonn í 3 ferðum og er tvisvar búinn að landa rétt yfir 60 tonnum.  Hringur SH er kominn með 163 tonn í 3 ferðum, mest 77 tonn í róðri. 
Í reykjavík er Steinunn SF gerð út og var báturinn búinn að fara í tvær sjóferðir og landa alls 127 tonni, mest 66 tonn.
Í Sandgerði er Óskar RE og hefur hann mestmegnis einbeitt sér að lýsuveiðum, og var kominn með tæp 19 tonn í 3 ferðum.
Í Grindavík er Oddgeir ÞH sem var búinn að fara í eina ferð og kom með tæp 46 tonn að landi.  Vörður EA er búinn að fara í 2 ferðir og er kominn með 106 tonn mest 72 tonn í löndun, sem er fullfermi hjá honum.
Í Vestmannaeyjum eru ansi margir bátar.
Stígandi VEr er kominn með tæp 60 tonn í 2 ferðum.  Nýi Dala Rafn VE 88 tonní 2 ferðum.  Drangavík  VE 125 tonn í 4 ferðum.  Vestmannaey VE 131 tonn í 4 ferðum,  Smáey VE 163 tonn í 4 ferðum og Bergey VE sem er langaflahæst enn sem komið er.  Bergey VE er kominn með 256 tonn í 4 ferðum, mest 83 tonn í róðri.  
Og að lokum Þinganes SF sem hefur landað á Höfn í Hornafirði og líka á Djúpavogi er kominn með 49 tonn í 2 ferðum. 

Tenglar