Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
13.02.2008 14:15
Bárður SH

Mynd Alfons Finnson. færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Þeir sem hafa verið að fylgjast með vertíðarlistanum hérna á síðunni, hafa örugglega tekið eftir því að smábáturinn Bárður SH er gjörsamlega búinn að stinga hina bátanna af í sínum flokki.
Núna um daginn kom Bárður SH með tæp 14 tonn í róðri, og þótt Bárður SH sé smábátur þá er þessi 14 tonna róður næst stærsti netaróður allra netabáta við snæfellsnes. Einungis Þórsnes II á stærri róður 14,7 tonn. Er svo komið að Bárður SH er orðinn 4 aflahæsti netabátur landsins.
áhöfninn á bátnum þarf reyndar að halda vel á spöðunum því á vertíðinni 2007 þá fiskuðu þeir rétt rúm 600 tonn, og því er spurning hvort þeir nái að slá það met.
Skrifað af Gísli.R
