Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
12.02.2008 09:38
Dögg SF og Benni SF
Línubátunum Benna SF og Dögg SF virðist ganga ansi vel í þau skipti sem bátarnir hafa komist út. í janúar þá komst Dögg SF ekki á sjó í 8 daga samfleytt, svo loks þegar Dögg SF komst út þá kom hún með að landi rúm 13 tonn.
Núna í febrúar þá hafa báðir bátarnir komið með yfir 10 tonn að landi. Benni SF hefur mest komist í 10,9 tonn og Dögg SF 11,8 tonn.
Þess má geta að þessir bátar eru einu smábátarnir sem hafa komist yfir 10 tonn það sem af er febrúar.

Skrifað af Gísli.r