Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
11.02.2008 15:08
Stærsti grásleppubátur..........í heimi????!!!!!!!

Mynd Jón Páll Ásgeirsson Færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Uppsjávarskipin okkar eru kominn flest hver úr síldarveiðum í grundarfirðinum, og hafa þau dreifst á loðnu, kolmuna og síld sem nokkur skip eru við veiðar á.
Við síldveiðar í Grundarfirði þá var meðafli oft ansi mikill og reiknast til að aukaafli á síldveiðunum í haust 2007 hafi numið tæpum 120 tonnum.
Ingunn AK hefur verið á loðnuveiðum það sem af er þessu ári, og var t.d með 2464 tonna afla í 3 ferðum í janúar.
hvað tengist það grásleppuveiðum?.
grásleppuveiðar eru mestmegnis stundaðar af litlum smábátum flestum undir 10 BT, og því vekur það nokkra athygli að aukaafli hjá Ingunni AK þar er grálseppa 83 kíló.
og því á titillinn á pistlinum vel við...Stærsti grásleppubátur í ....heimi...... ???.
Reyndar þá var Börkur NK einnig með grálsleppu , enn Börkur NK var með 4489 tonn í 4 ferðum og af því var grásleppa 20 kíló. og að lokum var Lundey NS með 54 kíló af grásleppu af 1828 tonna afla í 3 ferðum.
Eins og sést þá er grásleppuaflinn ekki stór hluti af heildarafla skipanna, enn vekur athygli engu að síður.
Skrifað af Gísli.R
