Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 2012
Gestir í dag: 432
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364162
Samtals gestir: 529052
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 21:45:07

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

07.02.2008 00:54

Er þetta ein ástæða???!!!


Mynd Gísli Reynisson.

Fyrir nokkru þá fór ég ásamt Frosta mínum ( hundurinn minn) í göngutúr um Reykjanesbæinn minn, og hluti af göngunni var að rölta niður á bryggju.
Í Njarðvík hefur undanfarin legið þar stálbátur að nafni Jóhanna Margrét SI.  hefur hún legið þar undanfarin 2 ár eða svo. 
Það sem vakti athygli mína voru spottarnir sem ganga aftur úr bátnum, því eins og sést á myndinni þá er annar þeirra orðin ansi laslegur. 
Var þetta kanski ástæðann fyrir því að Tjaldanes GK sem lá hinum meginn við bryggjuna þar sem Jóhanna Margrét SI lá, að hann slitnaði upp??.  allavega sargast þessir spottar þó sverir séu.
Saga bátsins:
Jóhanna Margrét SI var upprunalega smíðaður í austur-þýskalandi árið 1960 og hét fyrst Vinur ÍS 102 frá hnífsdal. fékk síðan 2 árum seinna nafnið Páll Pálsson ÍS.
Í stuttu máli má segja að nafnasaga bátsins sé eftirfarandi:
1960:Vinur ÍS 102
1962:Páll Pálsson ÍS 101
1967:Hamraberg VE 379
1974:Valdimar Sveinsson VE 22
1978:Eldhamar GK 72
1979:Eldhamar GK 13
1982:Klængur ÁR 2
1988:Tindfell SH 21
1991:Skarphéðinn RE 317
1995:Sæberg ÁR 20
1997:Háhyrningur BA 233
2000 (28.6):Helganes ST 11
2000:(20.11):Eyjaberg ST 60
2001:Eyjaberg GK 130
2002:Eyjaberg SK 130
2004:Jóhanna Margrét HU og síðan SI 11
Nokkar aflatölur:
Fyrstu vertíð bátsins árið 1961 þá réri Vinur ÍS á línu frá Ísafirði og fékk alls 275 tonn í 60 ferðum, var það mjög lítill afli ef miðað er við aðra línubáta á svæðinu þessa vertíð.
Eins og margir bátar á árunum 1960 til 1966 þá fór Vinur ÍS á síld og t.d árið 1962 þá landaði báturinn samtals 937 tonnum af síld í 25 ferðum eða tæp 38 tonn í löndun.
1964 þá gekk bátnum ansi vel á vertíð og fékk alls þá 713 tonn í 64 ferðum eða rúm 11 tonn í róðri.
árið 1972 þá var Hamraberg VE nafnið komið á bátinn og var t.d heilarársafli bátins það ár 895 tonn, og mesti afli í róðri ræp 33 tonn.
og svo í lokinn þá var síðsta löndun bátsins á siglufirði 27. apríl árið 2005 397 kíló.

Tenglar