Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Flettingar í dag: 423
Gestir í dag: 160
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371067
Samtals gestir: 530423
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:21:41
Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
06.02.2008 14:17
Gunnar Leós ÍS

Mynd Tryggvi Sigurðsson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir
Bolvíkingar hafa verið ansi duglegir að bæta við bátaflotann sinn. Nokkuð margir bátar komu þangað í fyrra. Ný Ásdís ÍS kom í staðinn fyrir minni bát. Björgmundur ÍS sem reyndar urðu tveir, því fyrst kom fyrrum Narfi SU og síðan kom fyrrum Karólína ÞH.
Útgerðarfélagið Fiskihóll í bolungarvík gerði út Gunnar Leós ÍS 112 frá árinu 2004 og til ársins 2007. Sá bátur er nú ansi merkilegur því hans fyrsta nafn var Guðmundur Einarsson ÍS og undir því nafni þá setti hann aflamet. Guðmundur Einarsson ÍS varð fyrsti smábátur undir 10Bt til að komast í 800 tonn í ársafla. Eftir að Fiskihóll fékk nýjan Gunnar Leós ÍS þá var gamli báturinn seldur til Færeyja í október 2007.
Nýi Gunnar Leós ÍS er þónokkru stærri heldur enn sá gamli mældist 8,9 BT, enn sá nýi 11,7BT. Tók útgerðin við honum í október 2007.
Hefur bátnum verið róið til línuveiða og gekk bátnum ansi vel í janúar. Fékk tæp 53 tonn í 13 ferðum, mest 7,2 tonn í róðri.
Við þessa viðbót í flota bolvíkinga þá eru þar orðnir 6 bátar yfir 10bt sem róa á línu. Guðmundur Einarsson ÍS. Sirrý ÍS. Björgmundur ÍS, Gunnar Leós ÍS, Sædís ÍS og Hrólfur Einarsson ÍS sem var lagt núna þetta fiskveiðiár.
Skrifað af Gísli.R
