Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
05.02.2008 23:22
Indriði Kristins BA. Nýr bátur
Mynd Gísli Reynisson
Það bætist sífellt við bátaflotann og núna er búið að sjósetja þann nýjasta. Indriði Kristins BA 751. Þessi bátur kemur í stað báts sem hefur haft sama nafn síðustu 10 árin. Gamli Indriði Kristins BA var smíðaður í Trefjum árið 1997, og ber skipasmíðanúmerið 170, á meðan nýji báturinn er með skipasmíðanúmerið 316.
Sá bátur heitir núna Vinur BA. Báðir bátarnir eru í eigu Miðvíkur efh á Tálknafirði.
það má segja að það séu tvö nokkuð stórmerkilegt atriði varðandi þennan bát. Hið fyrra er að útgerð bátsins hefur haldið gamla Indriða Kristins BA einungis á handfæraveiðar svo til frá því að sá bátur kom árið 1997, og hefur einungis verið gerður út sirka 3 til 6 mánuði á hverju ári. Og því er þetta nokkuð stökk að fara úr handfæraveiðum yfir í línuveiðar.
Vélin í bátnum er af gerðinni Doosan L126 og er hún 400 hestöfl við 2100 snúnínga á mínutu.Vélin er byggð á MAN vél, og er þetta í fyrsta sinn á íslandi sem þesskonar vél er sett í bát hér á landi.
Verður þessi vélarstærð að segjast ansi merkilegt þar sem flest allir nýsmíðaðir bátar hafa verð með mjög svo stórar vélar, allt uppí 800 hestafla. Í Indriða Kristins BA þá er ganghraða fórnað, gírhlutfalli breytt og skrúfa stækkuð með þessu þá fæst betri olíueyðsla.
Seinna atriðið er að þessi bátur er fyrsti smábáturinn sem smíðaður er fyrir vestfirðinga sem er með beitningavél um borð. Og telst það nokkuð merkilegt því línubátar frá vestfjörðum hafa flestir róið með balalínu til þess að geta notið línuívilnundar. Reyndar var Björgmundur ÍS ( fyrrum Karólína ÞH) fyrsti beitningavélasmábáturinn, enn hann var keyptur notaður.
Því má segja að Indriði Kristins BA sé byltingarkenndur bátur og mjög svo merkilegur sérstaklega gagnvart vestfirskum bátum.
Svona að lokum þegar myndin var tekinn í Hafnarfirði þá var höfninn ísilögð með ansi þykkum ís, og setur það ansi skrýtna umgjörð um bátinn.
Bestu þakki fær Högni Bergþórsson hjá Trefjum fyrir góðar upplýsingar við vinnslu þessa pistils
Skrifað af Gísli.R
