Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
30.01.2008 11:50
Dagrún ÍS 9

Mynd Þorgeir Baldursson færi ég honum bestu þakkir fyrir.
Við listasmíðar mínar varðandi íslenska bátaflotann þá þegar ég renni í gegnum skipaskrárnúmerinn þá rekst ég stundum í nöfn á bátum í dag sem voru nokkuð þekkt hérna á árum áður. Einn af þeim er smábáturinn Dagrún ÍS 9. Smábáturinn var smíðaður árið 1991 af Dalaplasti á ´Skagaströnd. og ber báturinn skipasmíðanúmerð 14. Sá bátur hefur verð mjög lítið gerður út síðastliðinn 7 ár, fór t.d einn róður allt árið 2007 og er búinn að fara í einn róður núna í janúar. mesti afli í róðri er tæp 4 tonn fengin á handfæri þegar báturinn hét Hólmaröst BA frá patreksfirði.
Nafnið Dagrún ÍS ætti flestum vestfirðingum og þá sértaklega Bolvíkingum að vera þekkt. Því árið 1975 í janúar þá kom Dagrún ÍS til Bolungarvíkur nýsmíðaður skuttogari. Sá togari var smíðaður í S.I.C.C.N.A skipasmíðastöðinni í Saint Malo í Frakklandi. Byrjaði togari veiðar í febrúar árið 1975 og var afli togarans 304,1 tonn í 3 ferðum, stærsta löndun 151,1 tonn, og sá afli varð jafnframt stærsti róður togarans árið 1975. Dagrúnu ÍS gekk oft ansi vel og t.d árið 1980 þá varð Dagrún ÍS aflahæsti togari landsins með 6977 tonn. Sem er gríðargóður afli. Þá var aflaskipið Guðbjörg ÍS í öðru sæti með 6890 tonna afla.
Nokkrar aflatölur á ég um Dagrúnu ÍS og ætla ég að fara 30 ár aftur í tímann til ársins 1978.
Frysta löndun var þann 6 janúar 68 tonn. Afli í janúar var rúm 361 tonn í 4 ferðum, mest 130 tonn í löndun.
Afli í febrúar var ekkert til að hrópa húrra fyrir enda brælur framan febrúar og afli 249 tonn í 3 ferðum, mest 129 tonn.
Heldur rættist í mars og komst togarinn uppí 141 tonn og varð afli í mars 362 tonn í 4 ferðum.
Í apríl þá fer nú að færast fjör í leikinn því togarinn landaði þann 7 apríl eftir 8 daga túr 188 tonnum eða rúm 23 tonn á úthaldsdag. næsta löndun var einnig yfir 180 tonn. afli í apríl 470,3 tonn í einungis 3 ferðum, eða 157 tonn í löndun
Í maí þá landaði Dagrún ÍS 4 sinnum og var með 490,9 tonn, mest 143,9 tonn í löndun
júní, stærsta löndun 175 tonn eftir 9 daga túr, og afli 411 tonn í 3 ferðum
Júlí byrjaði rólega fyrsta löndun 78 tonn. þann 12 þá kom Dagrún ÍS með 165,8 tonn. Eftir 7 daga túr þá kom hann aftur til hafnar með fullfermi uppá 223 tonn eða tæp 32 tonn á dag. Ekki létur þeir nægja einn 200 tonna túr því eftir 6 daga túr kom Dagrún ÍS aftur til hafnar enn nú með 219,2 tonn eða tæp 37 tonn ádag. Afli í júlí 685,2 tonn í 4 ferðum.
þann 1 ágúst þá kom togarinn með 111 tonn eftir einungis 2 daga á veiðum, mokveiði um 56 tonn á dag. Aftur fór togarinn yfir 200 tonn þegar hann kom með 221 tonn þann 16 ágúst. heildarafli í ágúst 523,5 tonn í 3 ferðum.
Fyrsta löndun í september var tæp 199 tonn, enn afli eftir það var mun minni, og afli í september 335 tonní 3 ferðum
Afli í október var mjög tregur og allt niðrí 27 tonna löndun. afi í október einungis 168 tonn í 3 feðrum
nokkuð betur gekk í nóvember þar sem afli varð 304 tonn í 4 ferðum, mest rúm 95 tonn
og að lokum Desember afli 281 tonn í 4 ferðum mest 119 tonn.
Dagrún ÍS endaði árið í 14 sæti með heildarafla uppá 4641 tonn
