Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 2017
Gestir í dag: 435
Flettingar í gær: 1928
Gestir í gær: 500
Samtals flettingar: 2364167
Samtals gestir: 529055
Tölur uppfærðar: 5.2.2012 21:43:21

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

28.01.2008 17:23

Fullfermistúrar


Mynd Gísli Reynisson

Ég skrifaði litla frétt hérna um Fullfermi hjá Gullfara HF.  reyndar var það um fullan bát af snjó eins og myndin sem ég setti inn með fréttinni bar með sér.  Þó nokkrir bátar hafa komið með fullfermi að fiski og skulu hér nefndir 4 bátar.
Birta Dís ÍS sem rær frá sandgerði og er ekki nema 5,8 brúttótonn kom með 6,3 tonn og var ýsa um 4.2 tonn af aflanum.
Happadís GK sem byrjaði vertíðína í neskaupststað. færði sig svo suður til sandgerðis og þaðan á snæfellsnes.  í Ólafsvík kom báturinn með 11,5 tonn í einni ferðinni og var þorskur um 9,2 tonn af aflanum
Stjáni Ebba ÍS ( fyrrum Arnar KE).  gerði mjög góðan túr þann 20 janúar. þegar hann kom með til Flateyrar 13,3 tonn og þar af var þorskur rúm 11 tonn. 
Og svo að lokum Friðrik Sigurðsson ÁR,  hann var fyrsti netabáturinn til að fara yfir 100 tonn og er líka sá fyrsti til að fara yfir 200 tonn.  því hann landaði 58,8 tonni í þorlákshöfn og var ufsi langstærstur hluti aflans eða tæp 57 tonn. 
Sjá má stöðuna á vertíðinni nánar með því að smella á Vertíð 2008 hérna til hliðar

Tenglar