Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
25.01.2008 23:04
Útgerðarfélag Sandgerðis
Mynd Gísli Reynisson
Svo virðist vera sem nóg sé að gerast í útgerðarmálum hérna sunnanlands. Útgerðarfélag Sandgerðis, ( mjög gott nafn ). keypti í desember Von GK frá Garði og heldur báturinn sínu nafni og umdæmisnúmeri. Er báturinn byrjaður að róa frá Sandgerði. Konni Júl GK sem var í garðinum er búið að selja og heitir hann núna Kiddi Lár GK 501. Það nafn er vel þekkt í Sandgerði þar sem frá því í apríl árið 2001 þá var stálbátur gerður út í Sandgerði undir nafninu Kristinn Lárusson GK 500.
Sá bátur ætti norðanmönnum að vera vel kunnugt um þar sem frá 1984 og til ársins 1991 þá hét sá bátur Heiðrún EA og var gerð út frá Árskógsströnd. Núna liggur hann í hafnarfirði og ólíktlegt má telja að hann verðir gerður út aftur.
Kristinn Lárusson var í daglegu tali kallaður Kiddi Lár, og var hann meðal annars faðir eigenda Ný-Fisks í Sandgerði, enn Útgerðarfélag Sandgerðis er að mestum hluta í eigu Ný-Fisks í Sandgerði og lagði t.d Kristinn lárusson GK 500 upp þar. Afla af Von GK er unnin þar. Addi Afi GK var skráður eign útgerðarfélagsins enn svo virðst vera sem búið sé að selja hann. Má bæta við að einnig bættist Bergvík KE í hópinn og heitir hann í dag Bergvík GK. er hann byrjaður róðra. Segja má að sá bátur sé þá kominn aftur í Sandgerði þar sem hann hét Óli Gísla GK áður enn hann fékk Bergvíkurnafnið. Hinn báturinn sem bættist í hópinn er Hamravík KE. hún er núna orðin Hamravík GK. Eitt er nokkuð merkilegt við þann bát, báturinn er smíðáður árið 2005 og hét þá Sóla HF, árið 2006 þá fékk hann nafnið Hamravík KE, og árið 2007 Hamravík GK. 3 nöfn á þremur árum.
