Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

22.01.2008 07:41

Óskar RE


Mynd Gísli Reynisson
Þegar Hauki EA var lagt í ágúst lok 2007 vegna bilunar í gír þá var áhöfn Hauks færð yfir á Óskar RE, sem var í eigu sömu útgerðar.  Óskar RE hafði þá legið í Sandgerði í um 3 mánuði.  Sævar Ólafsson trollari með meiru var skipstjóri á Hauki EA undir það síðasta og fór hann því yfir á Óskar RE. 
Bátnum gekk ansi vel á haustmánuðum og aðaláhersla Sævars var að veiða lýsu sem er ekki kvótategund.  Og gekk það eftir, því báturinn fékk  233 tonn af lýsu um haustið og komst mest uppí um 110 tonn af lýsu í einum mánuði. 
Óskar RE og Haukur EA eru báðir kvótalausir bátar, enn höfðu verið í viðskiptum við nesfisk í garði, og allur lýsuafli Óskars RE er unnin þar. 
Núna í janúar þá er báturinn búinn að fara 3 mjög stutta róðra, hver róður ekki nema um 3 dagar.  aflinn er kominn í tæp 85 tonn og af því er lýsa 69,3 tonn eða um 81% aflans. 
Þessi miklu utankvótaafli Óskars RE kemur kanski ekki á óvart, enda er Sævar mjög svo vanur trollari.  Árið 1995 í desember það ár þá var Sævar skipstjóri á Þór Péturssyni GK.  Lenti hann þá í því að fá 60 tonn af háfi á 3 nóttum.  stærsta holið var ein 20 tonn.   Í viðtali við Fiskifréttir í desember 1995 segir Sævar: "Við vorum að enda veiðiferð þegar við fengum 20 tonn af háfi síðustu nóttina...., fóru svo aftur næstu nótt og fengum þá 35 tonn.  Loks enduðum við á því að fá um 7 tonn 3 nóttina enn eftir það varð ekki vart við háf á svæðinu".  Eins og gefur að skilja þá fylgir háfnum gríðarmikil vinna eins og Sævar segir sjálfur frá " við urðum að tína fleiri tonn af háfi úr trollinu með höndunum.  Skrápurinn á háfnum er eins og sandpappír og það þurfti að ýta honum í rennunum niður í móttökuna".
Nokkuð ljóst er að áhöfn Óskars RE þarf ekki að ýta lýsunni niður eins og þarna árið 1995, því hún er nokkuð sleipari fiskur heldur enn háfurinn. 

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1113
Gestir í dag: 299
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611785
Samtals gestir: 580978
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 20:09:02

Tenglar