Aflafréttir og fleira

Sjávarútsfréttir um allt og alla


Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 448
Gestir í dag: 170
Flettingar í gær: 3187
Gestir í gær: 600
Samtals flettingar: 2371092
Samtals gestir: 530433
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 07:43:30

Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

19.01.2008 12:42

Handfæraveiðar í Janúar


Mynd Þorgeir Baldursson. Færi ég honum bestu þakkir fyrir

Það er alvenja að eftir áramótin þá bara bátar á fullt á flest öll veiðarfærin.  Troll, línu, net, dragnót og jafnvel togarnir líka.  Bátar sem stunda handfæraveiðar eru ekki inní þessum flokki.  Mjög fáir færabátar voru t.d að veiðum á haustmánuðum og t.d í desember voru einungis 4 færabátar sem voru að veiðum.
Tveir bátar hafa farið í róðra á handfæri það sem af er janúar.  Dúan SI, sem var einn 4 báta sem réru í desember er búinn að fara einn róður og kom með 222 kíló að landi.  Dúan SI hefur síðustu 2 ár róið fáeina róðra í janúar, og það hefur Sporður VE líka gert.  Sporður VE er ágætt dæmi um breytta tíma hjá nokkrum handfæraútgerðarmönnum.  Fram til ársins 2006 þá var báturinn einungis gerður út um vor og sumarmánuðina.  árið 2006 og fram til dagsins í dag þá hefur báturinn verður gerður út árið um kring.  Allavega hefur báturinn róið einhverja róðra í hverjum mánuði.  Núna í janúar þá er Sporður VE búinn að fara í 2 róðra á færi og kominn með 1012 kg.  fyrsti róður bátsins var tæp 800 kíló.

Tenglar