Reglur Síðunnar

Heimilt er að nota efni af síðunni. 
1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar.  en nota má efni úr listunum í fréttir

13.01.2008 11:19

Fyrstu landanir árin 2008 og 1978


Mynd Gísli Reynisson
Þeir fáu ísfiskstogarar sem eftir eru í dag eru flestir búnir að landa úr sinni fyrstu veiðiferð á árinu.  Nokkrir togaranna lönduðu einungis í gáma.  Suðurey VE var með 64,6 tonn í 4 gáma landað í Grundarfirði.  Bylgja VE var með 33,9 tonn í 3 gáma.  Kaldbakur EA 58,1 tonn í 2 gáma og Bergur VE 42,3 tonn í 3 gáma.  Berglín GK landaði fyrst skipa eða þann 5.1 afli var nokkuð lítill 17,4 tonn.  Einungis einn togari fór yfir 100 tonn í fyrstu löndun.  Ottó N Þorláksson RE kom með 178,4 tonn og af því var ufsi 148,9 tonn. 
Þeir eru nú ekki margir enn þó eru nokkrir togaranna sem eru gerðir út í dag sem voru í sömu aðstæðum árið 1978 eða fyrir 30 árum síðan. 
Byrjum á Páli Pálssyni ÍS 2008 þá var hann með 66,6 tonn þar af 1 gámur, 1978 kom hann með 105,4 tonn í sinni fyrstu löndun.
Bjartur NK kom með 60,1 tonn 2008, 1978 104,1 tonn sem reyndar var landað 11 janúar það ár.
Áður var minnst á Kaldbak EA (58,1 tonn 2008), árið 1978 þá kom Kaldbakur með heldur betur fullfermi 287,1 tonn, sem er tæplega 5 faldur meiri afli heldur enn 2008.
Múlaberg ÓF var með 73,5 tonn árið 2008.  1978 hét togarinn Ólafur Bekkur ÓF og kom með 139,6 tonn.  Reyndar er nokkuð áberandi hversu mjög svo góðan afla norðantogarar fengu í sínum fyrsta róðri árið 1978.
Hinn ÓF togarinn Sólberg ÓF  var með 186,4 tonn, enn Stálvík SI sló þeim öllum við þegar Stálvík SI kom með 194,2 tonn þann 8.janúar.
Björgúlfur EA var líka með góðan afla árið 1978, 178,3 tonn, árið 2008 79,2 tonn sem var landað á Eskifirði. 
Stefnir ÍS var með árið 2008 69,2 tonn þar af 1 gám, 1978 hét togarinn Gyllir ÍS og kom með 160,3 tonn sem landað var þann 8 janúar. 
Jón Vídalín ÁR var með 44,3 tonn þar af 1 gám árið 2008.  1978 hét togarinn Hoffell SU og var með 69,9 tonn.
Gunnbjörn ÍS var með 51,5 tonn þar af í 2 gáma árið 2008.  1978 hét togarinn Framnes ÍS og var með 60,1 tonn. 
Klakkur SH árið 2008 64,9 tonn, árið 1978 Klakkur VE og með svipaðan afla 64,1 tonn.
og að lokum Skafti HF sem árið 2008 var með 28,9 tonn. árið 1978 kom togarinn sem þá hét Skafti SK með 87,6 tonn.

Rétt er að geta að nokkrir togarar voru að veiðum á milli jóla og nýárs, enn ekki var landað úr þeim fyrr enn eftir ármót.  Sá afli er ekki tilgreindur hérna.

Um Mig

Nafn:

Gísli Reynisson

Farsími:

6635575

Afmælisdagur:

20. ágúst

Heimilisfang:

Fifudalur 23

Staðsetning:

Reykjanesbær

Heimasími:

4217585

Um:

Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðan

Kennitala:

200875-3709

Bankanúmer:

0142-15-380889
Flettingar í dag: 1113
Gestir í dag: 299
Flettingar í gær: 1774
Gestir í gær: 360
Samtals flettingar: 2611785
Samtals gestir: 580978
Tölur uppfærðar: 18.5.2012 20:09:02

Tenglar