Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
09.01.2008 12:35
Meira um Troll frá Ísafirði
Mynd Gísli Reynisson
Eins og greint var frá hérna 25.12 var fjallað um afla Öldunar ÍS og Halldórs Sigurðssonar ÍS sem´báðir hafa stundað trollveiðar frá ísafirði.
Nú hefur komið í ljós að allar afltölur sem voru birtar þá og á við um afla bátanna beggja eru "meðafli". aðalveiðar bátanna tveggja er að veiða þorsk í áframeldi.
Veiða bátarnir fyrir sitthvort eldisfyrirtækið. Í aflatölum þá er þorskur í því líka enn það er þorskur sem er of stór fyrir áframeldi.
Inná www.bb.is, má lesa tvær fréttir sem lúta að þessum veiðum þar sem þær eru gagnrýndar með tilliti til þess hversu mikil meðafli er hjá bátunum.
Í fréttinni 25.12 ( sem er hérna neðar á síðunni) þá kom fram að afli beggja bátanna samanlagt í nóvember og desember er kominn í 190 tonn. gera má ráð fyrir að hann gæti verið nokkru meiri þegar tölurnar fyrir eldisfiskinn koma inn.
núna í janúar þá haf bátarnir farið í nokkra róðra og er Halldór Sigurðsson ÍS kominn með tæp 21 tonn í 4 ferðum mest 8,4 tonn. Aldan ÍS má segja að hafi mokfiskað þar sem afli hennar er komin í tæp 41 tonn í 7 ferðum, mest 8,1 tonn í róðri. uppistaða afla beggja bátanna er ýsa. Inní þessar tölur á eftir að koma eldisfiskurinn
