Um Mig
Nafn:
Gísli ReynissonFarsími:
6635575Tölvupóstfang:
gis@rafpostur.isAfmælisdagur:
20. ágústHeimilisfang:
Fifudalur 23Staðsetning:
ReykjanesbærHeimasími:
4217585Um:
Vinn hjá Hópferðum Sævars. Þeir sem vilja styrkja mig varðandi síðuna þá er bankanúmer hérna fyrir neðanBankanúmer:
0142-15-380889Reglur Síðunnar
Heimilt er að nota efni af síðunni.1.Geta verður heimildar, þannig að heimildin sé jafnframt tengill inná www.aflafrettir.com
2. Bannað er að taka einstaka lista og birtar annarstaðar. en nota má efni úr listunum í fréttir
03.01.2008 16:20
Vetrarvertíð 2008
Mynd Gísli Reynisson
Á vetrarvertíð þá er yfirleitt líf og fjör í höfnum landsins.
Vetrarvertíðir hafa löngum dregið marga sjómenn og báta á mið suðvestalands og í breiðarfirðinum. Á tímabilinu milli 1950 og fram undir 1980 þá var ansi mikið fylgst með vertíðarafla báta og þá sérstaklega netabáta. Voru birtar oft myndir af fullhlöðnum bátum bæði í Morgunblaðinu og Vísi ásamt öðrum blöðum. Vestmannaeyingar höfðu það til siðs að sá bátur sem varð aflahæstur á vertíð fékk bikar.
Í dag er öldin önnur. netabátarnir eru svo til margir hverjir horfnir og vertíðarstemming langt því frá að vera eins og var hérna áður. Það á þá helst t.d við að núna er ekki eins mikið fjallað um vertíð og var hérna áður. Þótt það sé þá er alltaf mikið líf á höfnum og það kemur ansi oft fyrir að bátar koma drekkhlaðnir til hafnar með afla. Gott dæmi um það er á vertíð 2007 þá kom netabáturinn Ísak AK sem er 21Bt smábátur á netum og í 4 skipti í mars og apríl þá kom báturinn með meira enn 15 tonn í einu og mest 18 tonn í löndun. þetta er fullfermi og meira enn það.
Enn ekkert var fjallað um þennan afla. engar myndir og ekkert. þótti mér það ansi dapurt. víða um hafnir við sunnanvert landið sem og á snæfellsnesi þá voru margar svona álíka fullfermistölur. enn lítið sem ekkert var fjallað um það.
Á þessari vertíð 2008. þá ætla ég að reyna að brydda uppá smá ja hvað skulum við segja nýung. Ég ætla mér að fylgjast ansi vel með nokkrun völdum netabátum alla vertiðína, og reyna raða þeim upp eftir afla. Mun ég hafa listanna tvennskonar.Báta yfir 50BT(50+) og báta undir 50BT (50-).
Þeir bátar sem ég nefni hérna til sögunnar eru eftirfarandi. Rétt er að hafa í huga að ef menn vilja bæta við báti þá geta þeir gert það í umsögn hérna að neðan.
Ósk KE (50+)
Hvanney SF (50+)
Bárður SH (50-)
Keilir II AK (50-)
Árni í Teigi GK (50-)
Katrín SH (50-)
Sæþór EA (50-)
Erling KE (50+)
Friðrik Sigurðsson ÁR (50+)
Marta Ágústdóttir GK (50+)
Tjaldanes GK (50+)
Magnús SH (50+)
Glófaxi VE (50+)
Gandí VE (50+)
Ísak AK (50-)
Maron GK (50+)
Þorleifur EA (50+)
Haukaberg SH (50+)
Hafnartindur SH (50-)
Ársæll Sigurðsson HF (50-)
Nunni EA (50-)
Sandvíkingur ÁR (50-)
Portland VE (50+)
Sunna Líf KE (50-)
Hraunsvík GK (50-)
Haförn ÞH (50-)
Maggi Jóns KE (50-)
Hafborg KE (50-)
Skátinn GK (50-)
Þorsteinn GK 15(50+) frá raufarhöfn
Reginn ÁR (50-)
Geir ÞH(50+)
Sigurður Ólafsson SF (50+)
Erlingur SF (50+)
Skinney SF (50+)
Grímsnes GK (50+)
Egill SH(50+)
Á tímum þar sem kvóti stjórnar öllum veiðum og vertíðarbragur fyrri ára er ekki lengur til staðar er spurning hvort svona listi á nokkurn stað í samtímanum. Allavega þá hef ég þannig áhuga á þessum að ég læt reyna á þetta.
